Heilsuvernd - 01.04.1946, Side 23

Heilsuvernd - 01.04.1946, Side 23
HEILSUVERND 21 um, sem verka óbeint. Tregar hægðir geta líka orsak- azt óbeint af sjúkdómum annarsstaðar i líkamanum, svo sem nýrnasteinum, blóðleysi, taugakvillum. Sömu- leiðis kemur það fyrir við suma heila- eða mænusjúk- dóma, að þarmtaugarnar bila og hægðatregða hlýzt af. En langsamlega oftast er engum sjúkdómi til að dreifa sem orsök hægðatregðunnar. Hún verður ávani, eða réttara sagt óvani, m. a. af því, að menn vanrækja að gefa hægðunum gaum. Stundum er byrjunin þannig, að menn bæla niður hægðaþörfina af einhverjuin á- stæðum, af kæruleysi, leti, annríki, vegna staðhátta. Fer þá oft svo, að þörfin gerir ekki vart við sig aftur. Og þegar sá hinn sami verður þess. var, að hann hefir ekki haft hægðir í nokkra daga, grípur hann til einhvers hægðameðals, sem hefir tilætluð áhrif, og síðan hugsar hann ekki meira um það mál að sinni. En hægðameðalið verkar oft þannig, að þarmarnir gera verkfall og neita að starfa sjálfkrafa. Þá er með- alið bara tekið aftur, og innan skamms er það orðið ómissandi. En þeir sem nota hægðameðul, komast brátt að raun um, að sama meðalið verkar ekki nema nokk- urn tíma. Áhrifin fara þverrandi, og að lokum verður að fá annað sterkara. Menn fara að finna til kveisu- verkja, og áður en varir er komin bólga í þarmaná. Þá fyrst leita þeir Iæknis. En því er nú verr, að læknarn- ir margir hverjir líta á þetta sem meinlausan kvilla og gefa sjúklingnum bara nýtt hægðalyf (það er máske það, sem hann biður um), sem verkar um hríð en hætt- ir svo líka að gera nokkurt gagn ......... Hve oft eiga menn að hafa hægðir? Enski skurðlækn- irinn Sir Arbuthnot Lane, sem varð heimsfrægur fyrir ristilskurði sína, komst smámsaman að þeirri niður- stöðu, að allir slíkir uppskurðir yrðu óþarfir, ef menn höguðu mataræði sínu þannig, að þeir hefðu einatt góð- ar hægðir, en allir sjúkdómar í ristlinum ættu rót sina að rekja til hægðatregðu. Hann lagði niður starf sitt sem

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.