Heilsuvernd - 01.04.1946, Page 22

Heilsuvernd - 01.04.1946, Page 22
Dr. Axel Borgbjærg: Tregar hægðir. Grein þessi er tekin úr danska timaritinu „Arbeider Sama- riten“, 1939, og er eftir þekktan danskan lœkni og sérfræðing í meltingarsjúkdómum. Lýsir hann hér orsökum hægöatregðu og hvernig hægt sé að koma í veg fyrir hana og lækna á eðli- legan hátt, án lyfja. Greinin er eftirtektárverð m. a. fyrir þá sök, að höf. viðurkennir, að hann hafi.eftir meira en 30 ára lækningareynslu, skipt um skoðun í þessum efnum. Tregar hægðir eru orðnar svo algengar nú á dögum, að margir eru hættir að líta á þær sem sjúklegt ástand. Hægðameðul þykja svo sjálfsagður hlutur, að menn láta þess oft ekki getið við lækni sinn, að þeir noti þau, fyrr en ef þeir eru spurðir sérstaklega um það, og það jafnvel þótt þeir séu haldnir einhverjum meltingar- kvilla. En tregar iiægðir eru sjúkdómur, og hann æði alvar- legur, því að ef vanrækt er að ráða hót á honum eða skakkt að því farið, geta af hlotizt miklar þjáningar. Sjúkdómur þessi læknast ekki ún sérstakra ráðstaf- ana, og þá því aðeins að ráð sé í tíma tekið. Orsakir. En til þess að geta læknað sjúkdóm, þarf að finna orsök hans og nema hana á hrott. Og hver er þá orsök tregra liægða? Einstaka sinnum — en injög sjaldan — stafa þær af skemmd í meltingarveginum, t. d. þrengslum eða sam- gróningi í þörmunum, sem tefja beinlinis fyrir inni- haldi þeirra, eða þá magasári, gallsteinum o. fl. orsök-

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.