Heilsuvernd - 01.04.1946, Blaðsíða 64
62
HEILSUVERND
Sykurinn og börnin.
Eftir dr. Paul Carton.
Sykur í grænmeti og liráum aldinum er lifandi fæða. Þar er
hann í lifrænu sambandi við fjörefni og næringarsölt í lifandi
frumukjörnum. Frumur meltingarfæranna sjúga i sig næring-
arefnin úr liinum lifandi frumum grænmetisins eða aldinanna.
En verksmiðjusykurinn liefir verið hrifinn úr þessum lífrænu
samböndum við málmsölt og önnur efni og er þvi dautt efni.
Hann er ólífrænt efni, og meira að segja hættulegt efni, og það
kostar líffæri vor mikla og skaðiega áreynslu að melta hann.
Hann ertir innýflin og ofreynir þau ..........
Þeir sem komið liafa auga á skaðsemi sykursins, geta ekki
annað en furðað sig á skainmsýni þeirra manna, sem hvetja til
aukinnar neyzlu sætinda. Það er blátt áfram skelfilegt að horfa
ui>p á það mikla tjón, sem sykurinn vinnur viðkvæmum líffær-
um barnsins. Ég er sannfærður um, að af þeim 80.000 ung-
börnum, sem láta lífið árlega i Frakklandi, verður lielmingur-
inn sykrinum að bráð, sem látinn er i pelann hjá þeim. Það
er þessi manndrápssykur, miklu fremur en sóttkveikjur i mjólk-
inni, sem er hin sanna orsök meltingartruflana, bólgu í melt-
ingarfærum, niðurgangs, værðarleysis <>g taugatruflana, sem
ungbörn þjást svo mjög af.
Auk þess á sykurinn óbeina sök á smitandi barnasjúkdóm-
um. Þar eiga sykurinn og kjötið jafna sök. Með því að troða í
börnin sykri, sætindum, súkkulaði, þá erum við óafvitandi að
eyðileggja heilsu þeirra.
Læknar ráða oss til að gefa ársgömlu barni 120 grömm af
sykri á dag.Þetta gefur um helming þeirra liitaeininga, sem
barnið þarfnast. Ef fullorðinn maður ætti að borða hlutfalls-
lega eins inikinn sykur, þyrfti hann um 300 gr. á dag (sykur-
neyzla íslendinga er um 150 gr. á dag að meðaltali á hvert
mannsbarn í landinu).
Enginn fullorðinn maður mundi þola slikt til lengdar. En
samt sem áður leggjum við það á hin viðkvæmu meltingarfæri
vesalings barnanna að melta þessa gífurlegu sykurskammta. Ég
líð það aldrei, að nokkur minnsta ögn af sykri sé sett í pela
cða mat þeirra barna, sem ég er sóttur til. Þessi ráðstöfun ein
er nægileg til þess, að hin veikbyggðustu börn dafni og þrífist
áfallalaust.
(Úr „Cancer" (krabbainein) eftir J. I). liarker).