Heilsuvernd - 01.04.1946, Qupperneq 37
HEILSUVERND
35
„Það sem mér féll bezt í geð við Brown lækni,“ seg-
ir Taylor, „var hæverska lians. Hann var ekki að lofa
bata á stuttum tíma. Hann sagði, að það kynni að gela
liðið heilt ár, án þess að ég fyndi nokkra framför, og
því aðeins mætti ég gera mér von um bata, að ég legði
jafnmikla rækt við hreyfingu og útivist og mataræðið
sjálft.
Við ræddum nú um þetta fram og aftur, hvernig ég
ætti helzt að verja tímanum. Golf og tennis gat-ég ekki
iðkað, til þess vantaði mig „augu“. Fiskiveiðar töldum
við ekki ná tilganginum. En eftir langar bollalegging-
ar sagði Brown læknir. „Hafið þér nokkurntíma stund-
að garðrækt.“ Ég kvað já við því, og kvaðst hafa haft
gaman af garðvinnu, áður en ég varð latur og værukær.
„Þá er það klappað og klárt,“ sagði hann. „Þér farið
úr hænum, eitthvað út á land, þar sem þér getið haft
mikla hrevfingu undir heru lofti. Fáið yður garð, og
vinnið sjálfur í honum. Þér skuluð hara vinna, þegar
vður langar lil þess, mikið eða lítið eftir geðþótta. Þér
leggið vður og hvílist, þegar þér verðið þreyttur, en
hyrjið á nýjan leik, þegar þér eruð afþreyttur. Þér skul-
uð klæða yður sem allra minnst, eins lítið og lögin (og
nágrannar yðar) leyfa og nota sólskinið eftir megni.
Borðið aðeins náttúrlega fa>ðu, mikið af mjólk, rjóma,
nýtt grænmeti og aldini. Það er ekki víst, að þér finnið
mun á sjóninni þegar í stað, en ég get fullvissað yður
um það, að þér verðið orðinn sem nýr og betri maður
áður en lýkur.
Það var i marzlok, sem ég liitti Brown lækni fyrst.
Vikuna eftir lét ég setja mér stólpípu tvisvar sinnum,
næsta mánuð einu sinni í viku, síðan tíunda hvern dag,
þá einu sinni í mánuði og að lokum sjöttu hverja viku.
Meðan ég beið vorsins og þess að geta byrjað á garð-
vinnunni, fór ég í gufuhöð og hjó og sagaði brenni, til
þess að fá lireyfingu. Um miðjan apríl gat ég náð í land-
skika, um hálfan hektara að stærð, og fór þegar í stað