Heilsuvernd - 01.04.1946, Page 15

Heilsuvernd - 01.04.1946, Page 15
HEILSUVERND 13 Síður en svo. Enginn skyldi h.eldur halda, að konuf, sem vanala sig á kúnstfæði, svo að lieilsa þeirra lætur á sjá, framleiði í brjóstum sér fullkomna mjólk lianda börnum sínum. En þar tekur bara sú líknsama móðir Náttúra oft í taumana. Hún sviptir konuna mjólkinni, til þess að bjarga heilsu barnsins. Sérhyggja — Samhyggja. Um.kuna er nokkuð öðru máli að gegna. Hagsmunahyggja mjólkurframleiðandans krefst meiri mjólkur, og fóðurvísindi nútímans kunna ráð til þess að taka mjólkina með valdi. En það kost'ar kúna oft og einatt heilsuna eða lífið, og gengur alltaf út yfir mjólkurgæðin. Þetta eru því vafasöm vísindi og vafasöm hagfræði. Það er ekki nýtt, að liagsmunahyggjan og heilbrigðin eigi ekki samleið, heldur stefni sitt í hvora áttina. Hags- munahyggjan liggur oft norður og niður út í myrkur ósamræmis og dauða. Lífið sjálft, náttúrleg beilbrigði og þroski byggist á „sjmibiosis“ eða samhyggju og sam- vinnu allra fruma og allra líffæra likamans á svipað- an hátt og velferð eins þjóðfélags er komin undir óeig- ingjarnri samvinnu allra einstaklinga þess. A hinn bóginn er það hin skefjalausa sérhyggja, sem skapar sjúkdóma' eins og krabbameinið. Sjúkdómar yfirleitt eru bein afleiðing þess ósamræm- is,- sem skapast við það að brjóta það lögmál og þau takmörk, sem náttúran sjálf hefir alið allt lif upp við. Og hvergi hafa menningarþjóðirnar brotið þetta lög- mál eins freklega og á sviði næringarinnar. Þar er mik- ilvægasta framtíðarverkefni læknisfræðinnar. Hún héfir um of snúið sér að sjúkdómseinkennum, í stað þess að ráðast að orsökunum. A þessu þarf að verða gagnger breyting. Þá fyrst er tekin rétt stefna að höfuðmarkmiði læknisfræðinnar: útrýmingu sjúkdómanna, auknu lífs- tápi, þreki og þroska allra manna fullkominni heil- brigði. Ritað í júní 1M5.

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.