Heilsuvernd - 01.04.1946, Page 26

Heilsuvernd - 01.04.1946, Page 26
24 HEILSUVERND þessu raarki, og hefir það haft ómetanlega þýðingu fyr- ir heilsu hans. Skipt um skoðun. Eigum vér nú að trúa því, að um hægðatregðu sé að ræða, ef menn hafa ekki hægðir þrisvar á dag? Hafa höfundar þeir, sem nefndir hafa verið hér að framan, með Hippókrates í broddi fvlking- ar, rétt að mæla, eða er nægilegt að hafa hægðir einu sinni á dag, eins og margir læknar segja? Ég hallaðist áður fyi'r að máli hinna síðarnefndu og hefi alla ævi talið mig eiga því láni að fagna, að meltingin væri í ágætasta lagi. Ég hefi aldrei þurft að nota hægða- meðul — nema ef ég hefi legið veikur —, og stundum hefir það jafnvel borið við, að ég hefi ekki haft liægðir dag og dag. En ég taldi ekki ástæðu til að gera mér á- hyggjur út af því, af því að þær komu af sjálfu sér næsta dag, en voru þá stundum harðar og tregar. Ég lét þessa skoðun mína uppi í bók minni „Diæt“, sem kom út 1933, á bls. 90, með svofelldum orðum: „Hve oft eiga menn að hafa hægðir? Það er breytilegt frá manni til manns. Venjulega er talið, að hæfilegt sé að hafa hægðir einu sinni á dag, en þó eru til menn, sem kom- ast af með að hafa hægðir annanhvern dag eða sjaldn- ar. Hægðirnar verða þeim mun sjaldgæfari sem matur- inn notast betur, og því betur sem hann er tugginn, og ef ekki er horðað meira en likaminn þarfnast. Alfred Hramsen hafði vafalaust rétt að mæla, er hann héll þvi fram, að þegar menn tyggðu vel, yrðu hægðirnar sjald- gæfari, þurrari og minni fyrirferðar — rúmuðust á ösku- bakka, eins og komizt var að orði í þá daga —. Það er ástæðulaust að gera sér áhyggjur út af þvi, ef líðanin er góð, en sjálfsagt er að gefa þessu gaum. Hinsvegar eru til menn, sem hafa hægðir tvisvar til þrisvar á dag, einkum þeir,- sem neyta mikillar jurta- fæðu, sérstaklega ósoðinnar. Þó veit ég dæmi þess, að jurtaætur liafa tregar hægðir.“ Nú get ég ekki lengur staðið við þessi orð mín. Reynsla

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.