Heilsuvernd - 01.04.1946, Síða 29

Heilsuvernd - 01.04.1946, Síða 29
Saga stýrimannsins. Ég, Gösta Svedung, stýrimaður, Hædegatan 22 í Udde- valla, er af gamalli og stálhraustri óðalsbændaætt, sem ég get rakið aftur til 17. aldar. Forfeður mínir hafa ver- ið mjög heilsugóðir og náð háum aldri. Um heilsu mina var öðru máli að gegna. Ég er fæddur 21. sept. 1901 og hafði sæmilega heilsu á uppvaxtarárunum. En um hálf- þrítugt fékk ég illkynjað eksem, sem engar pillur, engin smyrsl né meðul fengu neitt við ráðið. Það hyrjaði í nárunum og breiddist síðan upp eftir hakinu og undir liendurnar. Ég fór auðvitað til livers læknisins á fætur öðrum. M. a. leitaði ég ráða hjá sérfræðingi í húðsjúk- dómum, fékk sifellt ný smyrsl og ný Jyf og var m. a. ráðlagt að ganga i nærfötum úr sérstöku lérefti. En allt kom fyrir ekki. Ég var mikill reykingamaður og drakk mikið kaffi frá morgni til kvölds. Ég lifði á kjöti, fiski og eggjum og annarri venjulegri „kjarnfæðu“. Enginn þeirra lækna, sem ég leitaði til, spurði liið minnsta um lifnaðarhætti mína, um mataræði mitt, hvort ég notaði tóbak eða önn- ur nautiiameðul. Allt þetta skipti í þeirra augum ekki neinu máli né stóð i nokkru sambandi við eksemið. Þannig dró ég fram lífið i tiu ár, til ársins 1936, sem varð svo viðburðaríkt fyrir mig. Það var þá, sem hin mikla næringartilraun Are Waerlands var auglýst í blaðinu „Frisksport“. 1 viðbót við eksemið var ég nú orðinn mjög magaveikur, hafði súra ropa og þjáðisl mjög af brjóstsviða, sem læknarnir fengu heldur ekki við ráðið. Auk þess var ég orðinn illa haldinn af liða- gigt, svo að útlitið var siður en svo glæsilegt. Og þá var ekki betur ástatt með konu mína. Ég gifti

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.