Heilsuvernd - 01.04.1946, Page 36

Heilsuvernd - 01.04.1946, Page 36
34 HEILSUVERND grænmeti. Einu sinni eða tvisvar í viku fæ ég mér ofur- lítinn bita af nautasteik, lítið steiktan. Og á hverjum degi geng ég út í þrjá klukkutíma, í hvaða veðri sem er . .. .“ Hin sagan er af manni, W,ayne L. Taylor að nafni, og líkist að mörgu leyti sögu Miss Micliaels. Taylor varð þess var dag nokkurn, er hann kom heim til sín, að hann var farinn að missa sjön. Á stuttum tima hrakaði sjón hans svo mjög, að hann gat ekki orðið greint karlmann frá kvenmanni í fimm skrefa fjarlægð. Hann var búinn að ganga á milli margra lækna. Þeir höfðu mælt blóðþiýstinginn, rannsakað hjarta, lifur, nýru og Iungu, og fundu hvergi neitt að. Þá var það einn læknirinn, sem stóð á því fastara en fótunum, að þetta kæmi út frá tönnunum. Tannlæknir Taylors sagði, að ekkert væri að tönnunum, en liann fór samt að ráð- um hins læknisins og lét draga úr sér allar tennurnar. Þetta kom að engu gagni. Og sama varð uppi á ten- ingnum, þegar Taylor lét taka úr sér hálskirtlana, eft- ir ráðum annars læknis! Á sjónleysinu varð engin hót ráðin. Og Taylor var orðinn eins vonlaus, sljór og sinnu- laus og Miss Michaels, þegar liann heyrði talað um lækni, sem var talinn snillingur af sumum stéttarbræðr- um sínum, en aðrir álitu hann hálfærðan — liklega að- allega vegna þess, að hann fékkst aldrei til að gefa meðul. Taylor var búinn að fá meira en nóg af meðulum. Honum hafði verið sagt, að hann væri ólæknandi, svo að hann hugsaði sem svö, að engu væri spillt, þótt hann færi að finna þennan Brown lækni. Hann fór til Browns, sem sagði honum, að sjúkdóm- urinn stafaði af tregum hægðum. Hann hefði meðal annars tekið þátt í alltof mörgum dýrindis átveizlum, haft of litla lireyfingu og útivist og eitrað likama sinn þannig smátt og' smátt, og að eitrunin stafaði aðallega út frá ristlinum.

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.