Heilsuvernd - 01.04.1946, Síða 55

Heilsuvernd - 01.04.1946, Síða 55
HEILSUVERND 53 einu lagi, og skiptir stjórnin að öðru leyti sjálf með sér störf- um. í varastjórn skal kjósa þrjá menn í einu lagi, og taki þeir sæti í stjórninni i forföllum, eftir atkvæðamagni. Kosning stjórnar og varastjórnar fari fram á aðalfundi. Þá skal og kjósa tvo endurskoðendur félagsins og einn til vara. Kjörtímabil er eitt ár. Að minnsta kosti 3 af stjórnendum félagsins, þar á meðal for- seti, skulu vera búsettir, þar sem félagið á hciniili og varnarþing'. 5. gr. Stjórnin kallar saman félagsfundi svo oft sem þurfa þykir, og ennfremur ef minnst 20 félagsmenn óska þess skriflega. Fundi skal boða með auglýsingum í ríkisútvarpi og minnst 2 dagblöð- um. Fundur er lögmætur, ef bann er boðaður með minnst 3 sólarhringa fyrirvara. 6. gr. Aðalfundur skal haldinn i marzmánuði ár hvert, og er liann lögmætur, sé hann boðaður á saina liátt og segir í 5. gr. Á aðalfundi skal stjórnin leggja fram skýrslu um störf fél- agsins á næstliðnu starfsári og endurskoðaða reikninga þess. 7. gr. Stjórnin ræður málefnum félagsins milli aðalfunda. Hún heldur gjiirðabækur yfir störf félagsfunda og sljórnarfunda. Stjórnar- fundir eru lögmætir, ef minnst 3 stjórnendur eru mættir, þar á meðal forseti eða varaforseti. 8. gr. Árslillag félagsmanna er kr. 10.00, og er gjalddagi 1. apríl ár hvert. Ævifélagi getur hver sá orðið, sem greiðir kr. 100.00 í eitt skipti fyrir öll. Ef félagsmaður skuldar meira en eins árs tillag, hefir stjórnin heimild til að strika liann út af félagaskrá, að minnsta kosti viku fyrirvara. 9. gr. Heiðursfélaga getur stjórnin kosið, ef hún er öll sammála um ]>að. Þeir eru ekki skyldir til að greiða árstillag, en hafa ö1!! réttindi félagsmanna. 10. gr. Félagsdeildir má stofna þar, sem tiu félagsmenn eða fleiri eru búseltir á sama stað.

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.