Strandapósturinn - 01.06.1968, Blaðsíða 31
Jón Magnússon, nú póstur og til heimilis á Gjögri, en hann var
lengi í Litlu-Avík. Að hans sögn vísaði bóndinn á Reykjanesi
Þórði á helhnn. Hafðist Þórður um hríð við í hellinum, svo að ekki
var á annarra vitorði en Reykjanessmanna. Smalastúlka frá Litlu-
Avík, dóttir bóndans þar, átti oft leið út með Hyrnunni, og tókst
kunningskapur með henni og Þórði. Kom svo hennar högum, að
hún varð þunguð af völdum hans. Hvarf hún þá að heiman og
dvaldist hjá Þórði í hellinum og ól þar barn sitt. Bóndinn í Litlu-
Ávík gerði mikla leit að dóttur sinni, en ekkert spurðist til hennar.
Loks gaf maður einn frá Reykjanesi honum í skyn, hvar hennar
væri að leita. Fór bóndi nú með nokkra menn til hellisins til þess
að sækja dóttur sína. Þórður var þá að koma af sjó. Tókst með
Litlu-Ávíkurmönnum og Þórði bardagi, því að ekki vildi hann
láta stúlkuna af hendi. Þórður komst upp á klettasyllu í Hyrnunni,
varðist þaðan með grjóti og fengu Avíkurmenn ekki tekið hann, en
stúlkunni og barninu náðu þeir og höfðu brott. Sumir þeirra urðu
fyrir nokkrum meiðslum af grjótkasti Þórðar, og er sagt, að bónd-
inn í Litlu-Ávík létist af áverka, sem Þórður veitti honum. Ekkert
er vitað, hvað síðar varð um Þórð. — Á þennan veg sagði Jón
Magnússon mér söguna sumarið 1960.
Þessi munnmæli eru auðsæilega af sama stofni og saga sú, er
Tómas Guðmundsson víðförli, frá Gróustöðum (1829—1895),
skráði í kver ásamt allmörgum öðrum sögum. Sendi séra Gísli
Sigurðsson í Gufudal það Jóni Árnasyni, þjóðsagnasafnara, árið
1865. Sagnir Tómasar hafa því borizt Jóni of seint, svo að hann
gat ekki tekið neina þeirra í íslenzkar Þjóðsögur og æfintýri, sem
komu út í Leipzig í tveimur stórum bindum á árunum 1862—
1864. Sagnakver Tómasar hefur legið í Landsbókasafninu í
þjóðsagnasafni því hinu mikla, sem Jón lét eftir sig. Var saga
Tómasar um Þórð sakamann fyrst prentuð í IV. bindi íslenzkra
þjóðsagna og ævintýra, sem þeir Árni Böðvarsson og Bjarni
Vilhjálmsson gáfu út í Reykjavík 1954—1961. Ég vil geta
þess, að Jón Magnússon hafði ekki hugmynd um, að Tómas víð-
förli hefði ritað sögu af Þórði sakamanni, né hitt, að hún hefði ver-
ið prentuð.
Hér fer á eftir saga Tómasar víðförla um Þórð sakamann:
29