Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1968, Side 75

Strandapósturinn - 01.06.1968, Side 75
í hólmana eftir björg, en nú sýndist mönnum sem mikil auðæfi væru þarna fólgin. Að lokum var sætzt á málin að ráði sýslu- manns, en fáir reyndu þetta aftur. Og þó, það rifjast nú upp fyrir mér að nokkrum árum síðar fórum við þrír saman nótt eina frá Drangsnesi í vestangarra. Þeir, sem með mér voru í ferð þessari, voru Magnús Sigurjónsson sjómaður frá Reykjavík og Elías Benediktsson frá Brúará. Vorum við allir syndir og viss- um að enginn bátur var við vötnin. Þegar komið var á staðinn var lágnætti, strekkingsvindur og kuldi nokkur. Var nú vol í mönnum en þótti ókarlmannlegt að hætta við svo búið. Varð að samkomulagi að allir skyldu afklæð- ast og hefja sund út í einn hólmann þar sem mikið var af fugli. Fór nú einn í hvorn stað bak við hól og skyldi afklæðast. Þegar ég hafði afklæðst lét ég bakpoka á öxl mér og hélt niður að vatninu. Hvergi sáust félagar mínir fyrst í stað, en brátt mátti þó sjá smettin á þeim uppundan hæðunum, voru þá báðir óafklæddir og hinir vesölustu ásýndum. Hafði ég ekki tal af þeim en lagðist til sunds og komst út í hólmann og fór að tína egg sem gnægð var af. Sótti brátt að mér kuldi og fannst mér ráðlegast að leita lands. Fannst mér vatnið volgt samanborið við næturgoluna á landi. Tóku svo félagar mínir við mér ísköldum og skjálfandi og urðu að klæða mig í fötin. Fofuðu þeir mjög hreysti mína og afsökuðu sig með ótrúlegustu orðum. Var svo haldið heim og farið að sjóða egg og skyldi nú borða vel áður lagst yrði til svefns en ekki eru allar ferðir til fjár. Eggin voru öll unguð og þó menn væru lystugir í meira lagi létu þeir ílla við fiðrinu og endirinn varð sá, að mín hetjudáð var dæmd einskisvirði, og ég held að þeir hafi jafnvel séð eftir að hafa eytt tíma í að klæða mig í fötin. Síðan hef ég ekki farið í eggver og lái mér hver sem vill. Flest þau ár, sem ég var við Steingrímsfjörð, fékkst ég eitthvað við barnakennslu. Einn veturinn var ég á Brúará hjá Benedikt Sigurðssyni og kenndi börnum hans frá fyrra hjónabandi. Var það vani minn að fara út með börnunum í rökkrinu til að leika mér með þeim eða fara í gönguferðir um nágrennið. Þá var það eitt sinn eftir mikla hríð og veðurofsa, að ég fór með bömin 73
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.