Strandapósturinn - 01.06.1968, Side 83
heilbrigðustu starfskröftum byggðarlagsins í mörgum málefnum,
— og samstarf hans til hjálpar einstaklingum og félagsmálum,
með ágætum. Jafnframt þessum störfum stundar hann atvinnu
sína sem aðalstarf og gerir það með ágætum.
Jóhann og Fjóla eignuðust 5 börn, sem öll eru á heimili for-
eldranna, það elzta mun vera um 18 ára — hin yngri. Efnileg
í alla staði eins og þau eiga kyn til.
Fyrir um það bil 3 árum bankar örlaganomin á dyr þessara
ágætu hjóna. Jóhann finnur til sjúkdóms, — hann leitar lækn-
inga hjá helztu sérfræðingum þessa lands. Það verður ljóst, að
sjúkdómurinn er alvarlegs eðlis. Hjálp fær hann um stundar-
sakir, — en alltaf rnikið þjáður. Fyrsti og annar þáttur í lífi
þessa ágæta manns var liðinn. Gleði og hamingja og atorka hafði
fylgt þeim hluta. Hann hafði eignazt elskulega og góða konu og
5 góð börn. Byggt upp gott heimili, — notið álits og trausts sam-
starfsmanna sinna og vináttu og þakklætis margra annarra.
Þriðji þátturinn var sjúkdómur og dauði, sem hann veitti mót-
töku með miklum kjarki, möglunarlaust.
Jóhann er dáinn, 46 ára gamall. Við þökkum honum góð
kynni — atorku og samstarf. Mörg verkefni, sem fyrir lágu og
hugsað var um, vom óleyst. Mikill hluti af eðlilegum starfsdegi
var óunninn. Það er sárt að svo skyldi fara. En enginn ræður
sínum næturstað, segir gamalt máltæki. Við sjáum skammt inn
í það, sem er að gerast —- og koma skal. Kannski er það misk-
unn við alla menn, að svo er.
Eiginkona, böm, öldmð móðir og bræður. Ég samhryggist
ykkur öllum innilega. Ég veit þið berið harm ykkar í hljóði og
fetið í fótspor margra annarra á öllum tímum. í hinni dýpstu
sorg er alltaf eitthvað, sem hjálpar.
Sér í lagi bið ég guð að rétta þér hjálparhönd, Fjóla mín, og
börnunum. Það er svo mikið, sem þið hafið misst. Þér og þeim
bætir enginn til fulls, sem orðið er.
Jón M. Bjarnason frá Skarði.
81