Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1976, Page 14

Strandapósturinn - 01.06.1976, Page 14
inn, en pottarnir sprungnir og einn alveg botnlaus. Þetta voru samt góðir gripir og fáséðir núorðið, og leyfði Þorsteinn á Finn- bogastöðum meir en fúslega að safnið á Reykjum eða væntan- legt sjóminjasafn fengi sáinn og pottana. Það hafði reyndar lengi verið talað um að reyna með einhverjum ráðum að koma sánum inn að Reykjum, þótt ekki yrði af því. Stóri sárinn í Ófeigsfirði, sem rúmaði 20 tunnur lifrar, var nú fallinn í stafi. Gjarðirnar, sem voru flestar úr tré en aðeins ein járngjörð, höfðu brostið og sárinn því hrunið saman. En einsýnt var að bjarga yrði spýtunum, því að setja mætti sáinn saman og koma honum i upphaflegt form. Það var lika auðsótt hjá Guðmundi Péturssyni í Ófeigsfirði og hann sá síðan um að flytja partana úr sánum að Eyri í Ingólfsfirði. í Ófeigsfirði er einnig stór og mikill bræðslupottur frá útgerð Ófeigs, en hann verður ekki fluttur fyrr en bílvegur kemur í Ófeigsfjörð og hægt að taka hann þannig. Það var greinilegt, að bregða þyrfti skjótt við og sækja þessa hluti og koma þeim undir þak áður en þeir gengju enn meira úr sér. Því var það, að Pétur G. Jónsson vélvirki í Kópavogi réðst í það að fara norður á Strandir á vörubíl, sem hann hafði umráð yfir, og sækja þessa hluti. Með honum fór Þorsteinn Jónsson, ungur námsmaður í fornleifafræði, og að auki lið galvaskra lög- regluþjóna, og þeir sóttu sáinn og pottana stóru og fóru með í safnið á Reykjum. — Þeir fóru einnig aðra ferð að Kjörvogi og sóttu þangað gamlar bátavélar, glóðarhausmótora, sem eru nú orðnir fáséðir. Með þessu var bjargað merkilegum hlutum, sem hafa mikið minjagildi og lýsa einum þætti þessa bjargræðisvegar, sem há- karlaveiðin var norður þar á síðustu öld. Sáina hafa þeir smíðað heimamenn og er ekki ólíklegt, að stóri sárinn í Ófeigsfirði sé jafngamall Ófeigi. Mér er að vísu ókunnugt um hákarlaveiðar frá Ófeigsfirði fyrir daga skipsins Ófeigs, en líklegt má telja, að þaðan hafi skip gengið áður til hákarlaveiða eins og frá öðrum stöðum norður þar. Nú er orðið þröngt um í Ófeigsskála á Reykjum, enda var hann upphaflega einkum hugsaður til að hýsa Ófeig og einn bát 12
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.