Strandapósturinn - 01.06.1976, Blaðsíða 44
fyrir augum. Skólahúsið var tilbúið til þessara nota um s.l. ára-
mót og hafa félögin þegar hafið starfsemi sína þar. Er fram-
tíðaraðstaða Hörpu var tryggð í nýja skólanum, var gamla
samkomuhúsið að Borgum selt bóndanum þar.
Það hefur margt breytzt á s.l. fimmtíu árum. Ýmis mál, er
ungmennafélögin höfðu í upphafi á stefnuskrá sinni, eru nú
komin í hendur annarra félagssamtaka og er þar skógræktin efst
á blaði. Það mál er svo til eingöngu i höndum Skógræktar
ríkisins og hinna ýmsu skógræktarfélaga. Að vísu eiga mörg
ungmennafélög sína sérstöku skógarlundi. Nú á tímum er starf-
andi og fer alltaf fjölgandi alls konar félagsskapur um alla skap-
aða hluti. Því vaknar sú spurning, hvort ungmennafélögin séu
ekki orðin óþörf og verkefnalaus, þar sem önnur félög séu búin að
taka yfir verkefni þeirra að miklu leyti.
Ég er ekki á þeirri skoðun, ég tel, að ungmennafélögin eigi og
þurfi að starfa áfram og sinna því sem meginverkefni að vekja og
virkja æskufólk til átaks og dáða og kenna því að gera fyrst og
fremst kröfur til sjálfs sín og vinna þannig gegn þeirri óheilla-
þróun, sem nú virðist vera mjög ríkjandi eins og það, að vaðið sé
upp með ýmsar vafasamar kröfugerðir. Það hafa margir, þeirra á
meðal ýmsir þjóðkunnir menn, sagt, að einmitt kynni þeirra og
störf í ungmennafélögunum, hafi reynzt hollur skóli og e.t.v. þar
fengizt bezta veganestið.
Hér hefur í fáum orðum verið getið 50 ára starfs Ungmenna-
fél. Hörpu og drepið á það helzta, er það hefur framkvæmt.
Þeirri hlið, er snýr inn á við, að félögunum sjálfum, hvað þeim
hverjum og einum hefur áunnizt með starfi sínu þar, tel ég mig
ekki færan um að dæma. Eitt er víst, að það er alveg sama hvern
maður hittir af fyrrverandi félögum Hörpu, og félagið og starf
þess berst i tal, eiga allir þaðan góðar endurminningar og afger-
andi er þakklætið og hlýhugurinn til Hörpu. Eg held, að afstaða
gömlu félaganna segi nokkuð til um það, hvernig Hörpu hefur
tekizt að rækja hlutverk sitt. Ég vænti þess, að hið nýja og
fullkomna húsnæði félagsins verði því hvöt til aukinna átaka,
enda þótt það hafi starfað allvel hin síðari ár við erfiðar aðstæð-
ur.
42