Strandapósturinn - 01.06.1976, Blaðsíða 91
Jón Guðmundsson, kaupmaður
í Felli, fimmtugur
Jón var sonur Maríu Jónsdóttur, ættaðri úr Hvammssveit í
Dalasýslu og Guðmundar Einarssonar frá Snartartungu í Bitru.
Þau bjuggu allan sinn búskap í Strandasýslu, utan 6 ár í Dala-
sýslu. Jón var yngstur af 12 systkinum og var því lengst heima.
Honum þótti afar vænt um Fell í Kollafirði, eignarjörð foreldra
okkar, og skírði verslun sína við Grettisgötu 57, Reykjavík, eftir
henni, enda festist við hann nafnið og var hann oftast nefndur
Jón í Felli. Hann byggði sér sumarbústað við Álftavatn, er hann
nefndi Svanafell. Þetta sýnir tryggð hans til átthaganna.
Við undum saman í cesku
og okkur samdi vel,
við byggðum saman borgir
og bœði áttum legg og skel.
Við komum seinna upp kofa
í kyrrlátum fjallasal,
er saman við sátum œrnar
í sólfögrum Steinadal.
Gott er að gleðjast saman,
gaman að vera börn,
veiða síli og setja
síðan í stíflaða tjörn.
A dalnum gœðingar gengu,
gaman að velja peim úr,
Er Benni og Varði — báðir
buðu á útreiðartúr.
Við teyguðum lífið úr lindum
og lásum blómanna flúr,
við horfðum á grasið gróa
og gleðjast við sól og skúr.
Sá er velur sér vorið að vini
ei villist um eyðilegt hjarn,
og víst er pað vœnsti skóli
að vera náttúrubarn.
89