Strandapósturinn - 01.06.1976, Side 30
Um hagkvæmni orkuvers þarna er ekki vitað, enda engar rann-
sóknir farið fram á svæðinu, en aðstæður virðast að ýmsu leyti
hagstæðar, vatnsvegir stuttir og talsverðir miðlunarmöguleikar í
Hrófbergsvatni. Hér kæmi veita Ósár yfir á Vatnadal mjög til
álita, enda tiltölulega auðveld framkvæmd og væntanlega ekki
kostnaðarsöm.
Hvalá — Rjúkandi
Norður í Ófeigsfirði er eini virkjunarstaður sýslunnar, sem
nokkuð kveður að, en það er i Hvalá, sem rennur til sjávar um 2,5
km norðan við bæinn Ófeigsfjörð.
Lítið er vitað um vatnsrennsli Hvalár og þveráa hennar, en
stærð afrennslissvæðisins er slíkt að hún er vafalítið vatnsmesta á
í sýslunni og þar með á Vestfjörðum.
Vatnasvið Selár í Steingrímsfirði er álíka stórt, en gera má ráð
fyrir að úrkomumagn sé nokkru meira á hálendinu upp af
Ófeigsfirði en upp og norður af Steingrímsfjarðarbotni.
Rjúkandi sameinast Hvalá tæpum 3 km ofan við árósinn og er
vatnsrennsli hvorrar fyrir sig sennilega álíka mikið.
Hvalá kemur úr Vatnalautavatni sem er í um 330 m hæð yfir
sjó og er all stórt eða tæpir 2 ferkm. (5 km langt) og því stærsta
vatn á hálendi Vestfjarða.
Kæmi til virkjunar Hvalár verður Rjúkanda ásamt Hvanna-
dalsá, sem rennur i Rjúkanda, veitt yfir í Vatnalautavatn, sem
verður aðalmiðlun virkjunarinnar.
Einnig virðist mögulegt að veita Eyvindarfjarðará yfir til
Hvalár í um 300 m hæð yfir sjó.
Allar árnar verða síðan virkjaðar sameiginlega í um 270 metra
falli.
Uppsett afl orkuversins verður væntanlega um 20.000 kW og
ársorkuvinnslugeta 120—130 GWst.
Til samanburðar við aðrar virkjanir hérlendis má benda á, að
Ljósafoss í Sogi og Laxá í S-Þingeyjarsýslu eru af svipaðri stærð
og Hvalárvirkjun.
Áin fellur þarna eins og áður segir um 270 metra á fjögurra
kílómetra kafla og eru í henni margir fossar og flúðir. Hæsti
28