Strandapósturinn - 01.06.1976, Page 37
Ihis ungmennafélagsins að Borgum.
óskað eftir tillögum um nafn á félaginu. Þrjár tillögur komu
fram. Nafnið ,,Hvöt“ frá Ólafi Guðjónssyni, „Dagsbrún“ frá
Elínu Sigurðardóttur og ,,Harpa“ frá Sæmundi Guðjónssyni.
Eftir nokkrar umræður var samþykkt, að hið nýstofnaða ung-
mennafélag skyldi heita Harpa. Þá var nokkuð rætt um árstillög
félagsmanna og samþykkt, að þau yrðu kr. 2.00 fyrir fullorðna,
en kr. f.00 fyrir börn á aldrinum 12—14 ára. Því næst var kosin
stjórn. Kosningu hlutu:
Guðlaugur Jónsson, Kolbeinsá, formaður.
Sæmundur Guðjónsson, Heydal, ritari.
Ólafur Ólafsson, Borgum, gjaldkeri.
Á næsta fundi í Ungmennafélaginu Hörpu, sem haldinn var á
Kolbeinsá 28. júní 1925, var endanlega gengið frá lögum félags-
ins. Á þeim fundi gengu 11 manns í félagið og voru félagar þar
með orðnir 24. Formaður hafði á síðasta fundi tilnefnt þrjá menn
35