Strandapósturinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Strandapósturinn - 01.06.1976, Qupperneq 40

Strandapósturinn - 01.06.1976, Qupperneq 40
Mikið gróskutímabil hófst í félaginu, er það eignaðist heimili, og hélzt það lengi. Þó að félagið kæmi upp húsinu, var langt frá því, að öll vandamál væru leyst í sambandi við rekstur félagsins og félagslíf, einkum skemmtanir. Húsið var einn salur, og vantaði því alla aðstöðu til veitinga, snyrtingar og einnig geymslurými. Þessa aðstöðu lét bóndinn á Borgum, Ólafur Ólafsson, í té allt þangað til að byggt var við húsið, en það var árið 1937. Þar sem ung- mennafélagshúsið stóð alllangt frá íbúðarhúsinu á Borgum, var þetta býsna óþægileg aðstaða fyrir þá, sem skemmtanir sóttu eða þá, er um þær sáu, að ógleymdum þeim átroðningi, sem þetta olli ábúendum á Borgum. Sérstaklega var mikil fyrirhöfn í sam- bandi við leiksýningar. Félagið kom sér upp færanlegu leiksviði, er fyrir hverja leiksýningu varð að setja upp, en að henni lokinni varð að taka það niður aftur, svo að dansinn gæti hafizt. Þetta gjörbreyttist, er félagið lét stækka samkomuhúsið, en þá fékkst allrúmgott leiksvið, með göngum á bak við og þar aðstaða til kaffihitunar. í kjallara þar undir fengust tvö herbergi, auk þess var þar gangur og útgöngudyr. Eftir að þessi viðbótarbygging komst upp, gat félagið notað leiksviðið til sölu veitinga, eftir að skemmtiatriði höfðu þar farið fram. Starfsemi U.M.F. Hörpu var á þessum árum aðallega fólgin í því að byggja félagið upp inn á við. Það er að reyna að virkja félagana eins vel og kostur var á, til átaks og uppbyggingar í starfi fyrir félagið, en engu að síður til þess að hvetja félagana til að trúa á sjálfa sig og þýðingu einstaklingsins fyrir þjóðfélagið í heild. Aðaluppistaðan í starfi félagsins á þessum árum voru fundarhöld og skemmtanir. Fundir voru flest árin, fram yfir 1940 fjórir til sjö á ári. Þeir voru þannig byggðir upp, að formaður tilnefndi fundarnefnd, skipaða þremur mönnum, til þess að flytja mál á næsta fundi og einnig tvo upplesara, og voru þeir allir sjálfráðir um efnisval. Mikill fjöldi málefna hefur verið tekinn til meðferðar á starfs- ævi félagsins, og er það bæði fróðlegt og skemmtilegt að lesa fundargerðir frá þessum tímum. Oft voru skoðanir skiptar og komu í sumum tilfellum upp deilur. Þó sést ekki annað af fund- 38
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Strandapósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.