Strandapósturinn - 01.06.1976, Page 47
Ingvar Agnarsson, 4. júlí 1975
Huldu-
konumar
I
Sumarið 1938 vann ég í síldarverksmiðjunni á Djúpuvík í
Reykjarfirði, og Aðalheiður Tómasdóttir, sem síðar varð kona
mín, vann við síldarsöltunina á sama stað.
Við vorum þarna við vinnu fram á haustið, eftir að flest
aðkomufólk var farið suður.
Einn sunnudag um haustið var indælt veður, logn og sólskin
og fremur hlýtt. Við gengum upp á fjallið fyrir ofan Djúpuvík.
Þar eru hvammar nokkrir í brún fjallsins innan við fossinn í
Djúpavíkurá, þar sem hann steypist fram af háum klettum,
beint upp af verksmiðjunni. Við gengum upp þessa hvamma,
uns við vorum komin upp á hálendið, þar sem Háafell blasir við
í suðri. Þarna uppi eru aflöng holt og klappir og lægðir á milli
með nokkrum hálendisgróðri. Við gengum í norður eftir sléttum
rimum á milli þessara lægða.
II
Skal nú sagt frá því, er fyrir okkur bar, þarna uppi á fjallinu.
Við gengum eftir melás einum, en á vinstri hönd var lægð eða
45