Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1976, Page 48

Strandapósturinn - 01.06.1976, Page 48
hvammur með einhverjum gróðri. Okkur verður litið niður í þessa lægð, og sjáum, að þar er hópur af konum, líklega milli tíu og tuttugu alls. Þær bogruðu allar yfir þúfurnar og virtust vera að tína eitthvað. Allar voru þær klæddar á gamla vísu og voru í síðum pilsum, ermalöngum blússum eða treyjum, og það sem athyglisverðast var, allar voru þær með þríhyrnur eða skakka yfir herðunum, eins og eldri konur voru vanar að nota í uppvexti mínum. Litur búninganna var mismunandi og einkum voru þríhyrnurnar marglitar og fagurlitar. Við Heiða sögðum hvort við annað á þessa leið: ,Jæja, eru þær þá komnar hingað upp allar konurnar úr Djúpuvík, til að tína ber“. Okkur fannst þetta ekkert undarlegt. Við höfðum augun á konunum, meðan við gengum framhjá þeim, og töluðum um þær og búninga þeirra. Svo bar leiti á milli og þær hurfu okkur. En er við höfðum gengið enn um stund, var eins og við rönkuðum allt í einu við okkur, eða eins og við vöknuðum upp af einskonar leiðslu. Við staðnæmd- umst og sögðum hvort við annað, undrandi: „Hvað var það sem við sáum? Hér uppi á fjallinu eru engin ber, og fáar konur eru eftir á Djúpuvík. Hvaða konur geta þetta verið? Þetta er undar- legt!“ Við ræddum þetta um stund, og okkur kom til hugar, að snúa aftur og gæta að, hvort konurnar væru enn á sama stað. En við áræddum ekki að snúa við. Það var eins og einhver geigur læddist að okkur. Við skildum, að þetta gátu ekki verið venjulegar, jarðneskar, mennskar konur. Við héldum áfram ferð okkar, og komum niður af fjallinu annarsstaðar. III Oft hefur okkur orðið hugsað til þessarar sýnar síðan. Kon- urnar á fjallinu virðast hafa verið klæddar á sama hátt og flestar sögur um huldukonur lýsa þeim. En hvað er huldufólk og hvernig á að skilja tilvist þess? Með lífssambandsuppgötvunum dr. Helga Pjeturss mun mega gera sér nokkra grein fyrir því, hvernig þessu er varið, þótt ekki ræði hann um huldufólk í ritum sínum. 46
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.