Strandapósturinn - 01.06.1976, Page 52
Magnús Sleingrímsson
skráði árið 1945:
Nokkrar
minningar
um Ara Gísla
Magnússon
Ari Gísli Magnússon var fæddur á Skálstöðum í Reykhóla-
sveit 9. júní 1860. Hann var sonur Magnúsar Jónssonar,
Sigurðssonar, bónda á Kinnarstöðum og Hvítadal. Kona Jóns á
Hvítadal, móðir Magnúsar, var Guðrún Aradóttir fálkafangara
og bónda á Reykhólum, en móðir Ara Gísla var Anna Jónsdóttir,
bónda á Kollabúðum, Jónssonar læknis í Armúla, Einarssonar.
En móðir Önnu var Kristín Ásgeirsdóttir frá Rauðamýri. Var
Ari Gísli yngstur af systkinum sínum, börnum Magnúsar og
Önnu, er voru ellefu að tölu. Verður í eftirfarandi linum nokkuð
frá honum sagt, er hann var kominn til fullorðinsára, einkum því
er að sjóferðum lýtur, því talinn var hann sjómaður góður og
kappsfullur í mesta lagi.
Það mun hafa verið nokkuð fyrir 1880 að hann fluttist frá
Skálstöðum með foreldrum sínum að Hólum í Hrófbergshreppi,
til Kristinar systur sinnar og Steingrims manns hennar, er þá
voru farin að búa þar fyrir nokkru. Var hann þar vinnumaður
um nokkurra ára skeið og þá venjulega hafður til sjóróðra á
50