Strandapósturinn - 01.06.1976, Page 55
Laugardaginn í miðgóu, 4. mars, var lagt af stað sem leið
liggur vestur yfir Steingrímsfjarðarheiði og hert fast að sér að
komast að Arngerðareyri um kvöldið. Var farið frá Hólum í
Staðardal snemma morguns, og báru allir nokkuð þungar byrð-
ar, en einhverjum færum hafði verið komið áður. Vorum við sex
saman, því að bróðir Ara, Jón að nafni, hafði bæst í hópinn og
auk þess unglingspiltur úr Kaldrananeshreppi, er Andrés hét.
Var norðlæg átt og færð slarkandi. Gerðist ekkert sögulegt á
leiðinni og fékkst gisting á Arngerðareyri.
Næsta dag, sunnudaginn 5. mars, skyldi farið út í Hnífsdal,
því að bátur og það er honum fylgdi, var til staðar á Arngerðar-
eyri. Um morguninn var þannig veðri farið, að þungt var í lofti
og norðan-norðaustan í átt. Um fullbirtu var undið að því að
komast af stað og vildu nú tveir kvenmenn fá að vera með. Var
því heitið. Önnur þeirra var frá Isafirði og hét Dagbjört, en hin
var frá Arngerðareyri og hét Bjarney. Lagt var af stað um
klukkan tíu í hæglátu róðrarleiði. Voru skipverjar nú orðnir átta
og var róðurinn fast sóttur, því að i Hnifsdal skyldi komast að
kvöldi. Þegar komið var á Ögurvík, var komin þung kæla og
snjódrífa, er magnaðist fljótt. Einhvern veginn var þó skolpast út
53