Strandapósturinn - 01.06.1976, Page 113
Helga S. Bjarnadótlir
frá Drangsnesi:
Prinsessan
Frásögn sú, er hér fer á eftir, er skráð af Helgu Soffíu Bjarna-
dóttur frá Drangsnesi, en hún var átta ára gömul þegar þetta
gerðist, en það var 8. mars 1903. Helga biður lesendur afsökunar
á því, ef frásögnin er ekki nógu skýr, en því til afsökunar er það,
að hún var aðeins átta ára gömul er þetta gerðist og svo hitt, að
nú, eftir sjötíu og þrjú ár, væri ekki óeðlilegt að ýmis smáatriði
þessa atburðar væru farin að falla í gleymsku, en aðalatriðin eru
enn fersk og lifandi og koma lesendum Strandapóstsins hér fyrir
sjónir sem ein af svipmyndum löngu liðins tíma.
í heimildum frá þessum tíma segir svo: 8.—9. mars gekk
ofsaveður víða yfir land og gjörði ærinn skaða á skipum.
Á Reykjavíkurhöfn strandaði fiskiskipið Lach Fyre eign Stef-
áns Th Jónssonar á Seyðisfirði, mönnum var bjargað.
Fiskiskipið Sturla eign Sturlu kaupm. Jónssonar í Reykjavík,
sökk á Eiðsvík, ekkert manntjón.
Skipið Randers eign kaupm. G. Zoega og Th. Th. brotnaði á
Eiðsgranda.
Frakknesk fiskiskúta brotnaði í spón í Reykjavík.
Frakknesk fiskiskúta sökk við Vestmannaeyjar, mönnum
bjargað.
111