Bjarmi - 01.04.2021, Side 5
bjarmi | apríl 2021 | 5
á sama hátt og það geti ástundað trú sína
heima og út af fyrir sig. Helstu takmarkanir
eru vegna almenns öryggis, almannareglu
eða ef heilsa annarra er í hættu eins og
birst hefur í smitvarnarráðstöfunum víða
um heim. Einstaklingarnir eru varðir frekar
en trúin sjálf.
Trúfrelsið er nátengt tjáningarfrelsi,
samkomufrelsi og félagafrelsi. Allir geta
tekið við og fært öðrum upplýsingar
og hugmyndir, hitt fólk og myndað
félagseiningar eins og kirkjur. Litlar
takmarkanir eru þar á. Þessi hugsun
er almenn í alþjóðasáttmálum og
mannréttindayfirlýsingum. Í ljósi þessa
spyr Doxat-Purser: Ef svo er, hvers
vegna er farið að þrengja að kristnu fólki í
Evrópu? Og það sem er enn verra: Hvers
vegna sæta milljónir kristinna manna
alvarlegum ofsóknum, kúgun, útskúfun,
lokun kirkna, að lesefni sé gert upptækt,
hömlur settar á boðunarstarf, þeir beittir
ofbeldi, fangelsun og jafnvel dauða?
Ástæður ofsókna eða kveikja þeirra,
mismununar og takmarkana sem settar
eru víða um heim eru mismunandi, en þar
má nefna:
• Umburðarlaus afstaða annarra
trúarbragða eða lífsskoðunar
• Umburðarlaus afstaða pólitískrar
hugmyndafræði og yfirvalda sem
aðhyllast hana
• Umburðarlaus afstaða einnar
kirkjudeildar til annarrar
• Þjóðernisskilningur tengdur einni
trú eða lífsskoðun
• Pólitískir deiluaðilar látnir fá
trúarlegan stimpil eða taka sér
hann sjálfir til að réttlæta málstað
sinn
• Léleg stjórnun yfirvalda. Þar sem
mannréttindi eru ekki virt bitnar
það á kristnum mönnum ásamt
öllum öðrum. Eða sveitastjórnir
horfa fram hjá lögum ríkisins og
kjósa að innleiða harðari aðgerðir.
Við þetta má bæta spillingu þar
sem afskiptaleysi ræður þegar
menn eru ofsóttir og ekki brugðist
við ofbeldinu.
• Deilur og árekstrar mismunandi
hópa. Samfélögum hættir til að
velja réttindi sumra framar annarra
þrátt fyrir að allir eigi að vera jafnir
fyrir lögum. Við þetta má bæta að
reynt er að víkka út skilninginn á
mannréttindum á kostnað sumra.
Þrýstingurinn getur komið frá
yfirvöldum, samfélaginu eða jafnvel
fjölskyldu hins kristna.
TRÚFRELSI OKKAR Á MEÐAL
Doxat-Purser bendir á að ekkert ríki Evrópu
sé meðal hinna 50 efstu á lista Open Doors,
þar sem hættulegast sé að vera kristinn.
Við búum blessunarlega við gríðarlegt frelsi
og ættum að nýta það frelsi sem best.
En þrátt fyrir það eiga kristnir menn sums
staðar í vandræðum, af misjöfnum toga.