Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 27

Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 27
Uppáhalds biblíuversin mín: Orðið varð mér til blessunar ODDNÝ GARÐARSDÓTTIR Þegar ég hugsa um trú mína kemur amma mín fyrst upp í huga mér. Þegar ég var barn kenndi hún mér morgun- og kvöldbænir og sagði mér sögur af Jesú. Amma sagði að hann fylgdist alltaf með mér. Hún kenndi mér líka Faðirvorið og upp frá því fór ég aldrei að sofa án þess að fara með Faðirvorið. Ég iðkaði ekki mikið trú fyrr en seinna á ævinni en amma mín gaf mér fræ trúarinnar sem blundaði í mér eins og mustarðskornið. Ritningin segir okkur að ef við höfum trú eins og mustarðskorn verði okkur ekkert um megn, (Matt 17.20). Það er dýrmætt að fá að lesa kristilegt efni og biðja með barnabörnunum. Við sem erum ömmur ættum að skipa okkur í það skarð til að viðhalda trúariðkun hjá börnum þessa lands. Ekki síst til að afkomendur okkar fái lifað lífinu í fullri gnægð. Og Jesús sagði: „Við hvað eigum við að líkja Guðs ríki? Með hvaða dæmi eigum við að lýsa því? Líkt er það mustarðskorni. Þegar því er sáð í mold er það smærra hverju sáðkorni á jörðu. En eftir að því er sáð tekur það að spretta, það verður öllum jurtum meira og fær svo stórar greinar að fuglar himins geta hreiðrað sig í skugga þess“ (Mrk 4.30- 32). Það er erfitt að velja uppáhaldsbiblíu- vers, þau eru svo mörg, en versin eru í umferð hjá mér svona pínulítið eftir aðstæðum og hvaða verkefni ég er að fást við í lífinu. Lífið býður upp á svo margt, bæði gleði og sorg. Biblíutextar hafa leiðbeint mér, gefið mér huggun og styrk. Verið ekki hugsjúk um neitt heldur gjörið í öllum hlutum óskir ykkar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu ykkar og hugsanir í Kristi Jesú (Fil 4.6-7). Mesta gæfusporið mitt var að leita í trúna eftir erfiða lífsreynslu. Í Jeremía 33.3 segir: „Hrópaðu til mín! Ég mun bænheyra þig og ég mun kunngjöra þér mikla hluti og leyndardómsfulla sem þú hefur ekki áður þekkt.“ Þegar raunir þjaka leitar fólk á náðir æðri máttar. Trúin hefur haft djúpstætt gildi fyrir mig. Trúin gefur lífinu dýpri merkingu og hjálpar í viðureign daglegs lífs, ásamt því sem hún styrkir böndin í samskiptum við samferðafólkið. Fyrir tilstuðlan trúarinnar fann ég merkingu og tilgang í þessu öllu og ræð betur við öldugang lífsins. Trúin dregur úr kvíða og veitir sjálfstraust og gefur von um að böl megi bæta. Guð er stórkostlegur, hann hefur alltaf gert hið ómögulega mögulegt fyrir börnin sín. Hann endurreisir og frelsar okkur sem viljum kalla okkur börn hans. Guð vísar okkur veginn í öllum aðstæðum, við þurfum bara að rétta út höndina í bæn. Það eru engin takmörk fyrir vilja hans og getu til að hjálpa okkur þegar við erum í erfiðleikum, hann elskar okkur eins og við erum, án allra skilyrða, hann sér okkur falleg og lýtalaus. Guð þráir að heyra bæn af vörum okkar og vill leiða okkur í gegnum allt. Hann veit líka hvað er okkur fyrir bestu, þekkir okkur jafnvel betur en við sjálf. Hann þrengir sér ekki upp á okkur heldur bíður álengdar. Við að lesa orðið og iðka trú, hef ég upplifað áskoranir í lífinu og það hefur gert mig að betri manneskju, líf mitt hefur tekið nýja stefnu og fengið tilgang. Þetta nýja lífsviðhorf fær mig til að nálgast öll verkefni af kærleika. Það er gott að hefja augun til fjallanna og hvíla í þeirri trú að Drottinn vaki yfir mér daga og nætur og verndi mig frá öllu illu. Hann er mér til hægri handar, alltaf. Stundum finnst okkur trú okkar lítilfjörleg, kannski þorum við varla að játa að okkur langi til að trúa, kannski finnst okkur trú okkar ekki vera nógu kröftug, að það gerist svo lítið í trúarlífi okkar. „Auk oss trú!“ sögðu lærisveinarnir við Jesú. Hann svaraði þeim: „Ef þið hafið trú eins og mustarðskorn þá getið þið sagt við mórberjatré: Ríf þig upp með rótum og fest rætur í sjó, og það myndi hlýða.“ Mustarðskorn er eitt minnsta fræ sem til er, sést varla en í því býr kraftur sem er líkastur kraftaverki. En mustarðskornið þarf jarðveg og vökvun til að vaxa og dafna. Þessi líking á við um trú okkar. Hvernig sem okkur líður. Munum eftir þessu svari Jesú. Trúin er gjöf, sem Guð leggur í hjarta okkar. Ef við réttum út höndina og tökum við gjöfinni og búum þannig um litla trúarkornið, að það fái að vaxa og dafna, þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur, Guð sér um vöxtinn. Við erum kölluð til að vera farvegur kærleika hans. bjarmi | apríl 2021 | 27

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.