Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 14
| bjarmi | apríl 202114
Sigur í máli Franklins
Graham
Skipuleggjendur þriggja daga
boðunarátaks með Franklin Graham
í Blackpool í september 2018 kærðu
ákvörðun bæjarstjórnar um að hætta við
að birta auglýsingar vegna átaksins á
strætisvögnum á svæðinu. Auglýsingarnar
vísuðu aðeins í atburðinn, „Tími til að
vona“ og dagsetningar viðburðarins, en
einhverjir óttuðust að Franklin Graham
myndi nota tækifærið fyrir hatursumræðu
af því tilefni. Byggði það á orðum
sem hann hafði látið falla um íslam og
hjónabönd samkynhneigðra. Yfirmaður
almenningssamgangna sagði að þetta
hefði verið ákveðið eftir ábendingar frá
almenningi.
Skipuleggjendur atburðarins
ákváðu að kæra auglýsingabannið
en málsmeðferð tafðist vegna
heimsfaraldursins. Niðurstaða dómarans
var að málfrelsi hefði verið heft og ekki
virt af þeim sem tóku þessa ákvörðun.
Réttindi eins hóps voru metin ofar
réttindum annars. Franklin sjálfur fagnaði
niðurstöðunni og sagði hana vera ávinning
fyrir sérhvern kristinn mann á Bretlandi.
Fleiri tóku undir þau orð. Úrskurðurinn
staðfesti að kristið fólk eigi rétt á að tjá
trúarlegar skoðanir sínar á hjónabandi
og kynlífi á opinberum vettvangi án þess
að þeim sé mismunað eða þurfi að lúta
hótunum þeirra sem vilja þagga niður
í þeim. Viðbúið er að hin brotlegu verði
skaðabótaskyld. Ábyrgðaraðilar sögðu
að reglum og viðmiðum verði breytt
enda séu þau í sístæðri skoðun þegar
kemur að viðkvæmum málum. Áhersla
sé lögð á að bæjarstjórn og fyrirtæki á
vegum sveitarfélagsins vinni að jafnrétti
og fjölbreytni, gegn mismunun og stefni
að virðingu, umburðarlyndi og skilningi í
samfélaginu öllu.
Á það hefur verið bent að sumir
fagni þessu en aðrir séu óhressir og
stafi það af afstöðu þeirra til Franklins
Graham og að þetta snúist um hann eða
afstöðu hans til tiltekinna mála. Þetta
mál verði þó að skoða óháð persónum
þar sem þetta snúist um mál- og ritfrelsi
og valdsvið sveitar- og bæjarstjórna.
Brotið var á jafnræði og mismunun átti
sér stað en verjandi reyndi að rökstyðja
einmitt rétt til þess. Afstaða Franklins væri
óásættanleg og því í lagi að mismuna
– og um leið að brjóta það sem lögin
eiga að verja í lýðræðislegu samfélagi.
Dómurinn staðfesti að sannfæringin um
að hefðbundið hjónaband sé sáttmáli eins
karlmanns og einnar konu sé útbreiddur
skilningur fjölda trúarhópa, kristinna
sem annarrar trúar. Þó svo sumum
finnst það móðgandi sé ekki hægt að
tala um það sem öfgahyggju. Yfirvöld
verða því að tryggja frelsi og réttindi allra.
Lögin séu skýr. Trúfrelsi og málfrelsi eru
grundvallarréttindi sem tryggð séu öllum.
Það sé heldur ekki lögbrot að móðga
aðra.
Þá má einnig geta þess að BGEA,
boðunarsamtök Billys Graham, hafa kært
afbókun á ráðstefnusetri sem samtökin
höfðu bókað í Skotlandi. Stofnunin sem á
setrið hefur verið kærð fyrir mismunun, þar
sem bókunin var afturkölluð vegna afstöðu
samtakanna og samstarfskirkjunnar,
Stirling Free Church, til hjónabandsins
á forsendum trúarskoðana. Ætlunin var
að nota ráðstefnusetrið fyrir námskeið
sjálfboðaliða. Staðurinn er skilgreindur
sem hlutlaus til notkunar fyrir almenning en
ef takamarka eigi notkun vegna afstöðu til
ákveðinna mála sé það augljós mismunun
og frelsisbrot. Það sé ekki hlutleysi að
mismuna trúarlegum samtökum.
(Premierchristianity.com 1. apríl 2021)
Einn þekktasti
kvenpredikari
Bandaríkjanna, Beth
Moore, segir skilið við
kirkjudeild sína
Beth Moore er ein af þekktari predikurum
vestanhafs og höfundur margra bóka um
trúna og eftirfylgd við Jesú Krist. Hún er
63 ára að aldri og stofnandi Living Proof
Ministries. Hún hefur sérstaklega náð
vel til kvenna og verið mjög vinsæl sem
Fréttir