Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 18

Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 18
| bjarmi | apríl 202118 1 Tilgangur þess er einungis sá, að upplífga trúna á heimsins frelsara í lesendanna hjörtum, þá trú, sem ávaxtasöm sé af góðum verkum, hvar fyrir öll þessa félags rit skulu stefna að þessu aðal-augnamiði 2 Ritin skulu vera mestan part útleggingar hinna bestu rita, frá útlenskum félögum, er hafa það sama augnamið.. Á meðan sr. Jón lifði tókst honum að koma út 67 ritum en 13 að auki voru tilbúin í handritum í Kaupmannahöfn og komu út að honum látnum 1846, hið síðasta 1854. Efni ritanna er mestmegnis þýtt af sr. Jóni eða samið af honum. Það er mjög víðfeðmt; útlegging orðsins, skýringar á Ágsborgarjátningunni, frásagnir af kristniboði og afturhvarfssögur svo nokkuð sé nefnt. Ljóst er af frásögnum að ekki hefði verið hægt að ráðast í svo viðamikla útgáfu án stuðnings Hendersons í upphafi. Margir áhrifamenn bæði innanlands og erlendis lögðu málinu lið auk áskrifenda. Öll ritin utan eitt voru prentuð í Danmörku og áður en Jón lést sendi hann 1000 ríkisdala sjóð til vörslu Bræðrasafnaðar í Kaupmannahöfn. Skyldi sjóðurinn ávaxtast og vextir af honum nýttir til þess að gefa út nokkur kristileg smárit árlega. Það leið að vísu harla langur tími þangað til sú varð raunin að sjóðurinn nýttist en að öllum líkindum hvarf hann svo í verðbólgu fyrri heimsstyrjaldarinnar. Ætla má að smáritafélagið hafi dáið út með Jóni. Margir hafa talið þetta vera fyrstu kristilegu smáritin útgefin á íslensku en svo er þó ekki. Sr. Hjalti Hugason, prófessor, getur þess í sögu kristni hér á landi sem útgefin var í tengslum við 1000 ára ártíð kristnitökunnar, að sr. Jónas Gíslason vígslubiskup hafi velt þeirri spurningu upp í grein, hvort slík smárit hefðu komið til Hafnarfjarðar með Hansakaupmönnum um eða upp úr aldamótunum 1500. Þeirri spurningu verður líklega aldrei svarað. Hins vegar er ljóst að til er eitt smárit á íslensku (sagnir eru um að „RÆÐUNNI GLEYMA ÞEIR, EN SMÁRITIN TAKA ÞEIR MEÐ SÉR HEIM OG LESA ÞAU ÞAR, EF TIL VILL ÁSAMT MÖRGUM ÖÐRUM.“

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.