Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 40
| bjarmi | apríl 202140
RÓSA ÓLÖF ÓLAFÍUDÓTTIR
Konurnar í
Hörgshlíð 12
Í þessari grein kynni ég til sögunnar
stórkostlegar trúarhetjur. Þetta voru fimm
konur sem störfuðu saman á einum eða
öðrum tíma að sama markmiði, að hefja upp
nafn Jesú og breiða út ilminn af þekkingunni
á honum. Sú nafntogaðasta þeirra gekk
undir nafninu Guðrún í Hörgshlíð. Hún var
þekkt fyrir fyrirbænaþjónustu sem oft og
iðulega leiddi til lækninga á sjúkdómum sem
fólk þjáðist af. Sjálf gaf hún Guði dýrðina af
þessum kraftaverkum.
Hér verður aðeins reifuð saga tveggja
þessara kvenna, hinar þrjár verða aðeins
stuttlega kynntar vegna þess að rými til
umfjöllunar er af skornum skammti.
UPPHAFIÐ
SALBJÖRG EYJÓLFSDÓTTIR (10.
JÚLÍ 1900-20. ÁGÚST 1991)
Salbjörg Eyjólfsdóttir var fædd að
Geitareyjum á Skógarströnd. Hún var
dóttir hjónanna Eyjólfs Stefánssonar og
Sigríðar Friðriksdóttur. Salbjörg var yngst sjö
systkina, fjögurra systra og þriggja bræðra
en þeir létust allir í bernsku. Þegar Salvör var
tveggja ára missti hún móður sína (1902).
Faðir hennar gifti sig aftur árið 1906 og
eignaðist hann og kona hans Jensína Kristín
Jónsdóttir frá Arnarbæli á Fellsströnd einnig
sjö börn en tvö þeirra létust í bernsku.
Árið 1920 brá Eyjólfur faðir Salbjargar búi
og fluttist með fjölskylduna til Hafnarfjarðar.
Hann keypti húsið að Hverfisgötu 6b og þar
bjó Salbjörg til æviloka.1
Strax í bernsku leituðu á huga Salbjargar
spurningar um lífið, tilveruna og tilvist Guðs.
Það vakti undrun manna þegar henni, ungri
að árum, varð tíðrætt um synd og sekt
mannsins. Þeim virtist sem slíkt umræðuefni
væri á skjön við sakleysi bernskunnar. Um
fermingaraldur sótti á hana djúp syndaneyð
og hún fann sig knúna til að leita svara við
öllum þeim spurningum sem sóttu og sótt
höfðu á huga hennar svo lengi. En það var
fátt um svör . Það var ekki fyrr en Salbjörg var
um tvítugt að hún fékk svörin og þorstanum
í sálu hennar var svalað. Systir hennar gaf
henni Biblíu. Biblíunni fylgdi smákver þar
sem útskýrt var með vísan í ritningarvers
hvernig nálgast mætti Guð. Fyrir Salbjörgu
opnuðust lindir hjálpræðisins og leit hennar
var lokið. Hún iðraðist synda sinna frammi
fyrir Jesú Kristi og öðlaðist langþráða
sáluhjálp, frið og nýtt líf. Það leið ekki á
löngu áður en hún skynjaði köllun Guðs til
þjónustu við meðbræður sína og hún gekk
í Hjálpræðisherinn. Salvör starfaði með
þeim hér heima og síðar erlendis. Í þessari
þjónustu í þágu Jesú Krists og meðsystkina
sinna, smitaðist Salbjörg af berklum og
markaði sjúkdómurinn endalok þjónustunnar
í Hjálpræðishernum. Hún var lögð alvarlega
veik inn á berklahælið á Vífilstöðum og um
tíma var henni vart hugað líf. Læknar tjáðu
henni að fram undan væri löng sjúkdómslega