Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 34
| bjarmi | apríl 202134
UM SÖGU LAUSANNE-
HREYFINGARINNAR
Í heimi mikilla umbreytinga á sviði stjórnmála,
efnahagsmála, vísinda og trúarbragða
sá Billy Graham ástæðu til þess að
endurskilgreina kristniboð og kristna boðun
– sem þó yrði ekki gert nema því aðeins að
kristnir leiðtogar um víða veröld sameinuðust
í köllun sinni, um að boða heiminum
fagnaðarerindið. Það varð til þess að Billy
Graham, ásamt góðum vini sínum, John
Stott, söfnuðu saman 2.400 þátttakendum
frá 150 löndum í Lausanne í Sviss til að
tengjast, læra hver af öðrum og biðja
saman. Með því varð til biblíuleg yfirlýsing
sem kölluð er Lausanne-sáttmálinn. Þetta
skjal mótaði hugsun hins evangelíska heims
það sem eftir var aldarinnar og hefur verið
„álitið eitt af mikilvægustu skjölum nútíma
kirkjusögu ... það var sem sameinandi
köllun til hinnar evangelísku kirkju um heim
allan. Það skilgreindi merkingu þess að vera
evangelískur og skoraði á kristið fólk að
vinna saman að því að fólk um víða veröld
kynntist Jesú Kristi.“
Frá árinu 1974 hefur Lausanne-
hreyfingin staðið fyrir samverum, ráðstefnum
og fleiri viðburðum í því skyni að safna
saman lykilfólki um heim allan til þess að
tengjast, biðja og læra hvert af öðru. Þessar
samverur hafa orðið kirkjunni til hvatningar
m.a. með því að setja saman skjöl sem hafa
ýtt undir kristniboðshugsun og hugarfar um
allan heim.
LAUSANNE EVRÓPU
Með þennan stórkostlega arf í farteskinu
ákvað svæðisnefnd Lausanne-hreyfingar-
innar í Evrópu að tímabært væri fyrir
Evrópubúa að ræða saman um boðunarstarf
og kristniboð í okkar eigin heimsálfu og
þannig fæddist hugmyndin um Lausanne
Evrópa 20/21: Samtal og samvera: Kröftugt
fagnaðarerindi – Ný Evrópa.
Evrópa er breytt og þar með breyttust
áskoranir og tækifæri til kristniboðs einnig.
Guðleysi og íslam sækja fram en staða
kristinnar trúar veikist víða í Evrópu. Með
komu innflytjenda til Evrópu hefur vaxið ótti
meðal fólk um framtíð sjálfsmyndar okkar
sem mismunandi þjóða í ótta við aðra
sem eru ekki eins og við. Hugmyndafræði
og stefnur okkar berjast um athygli og
Covid-19 með samkomutakmörkunum
hefur fært okkur nýtt líf með Zoom og öðrum
samverum á netinu. Evrópa er breytt og
breytist áfram. Hvaða áhrif hefur það á kirkju
Krists í Evrópu? Hvernig bregðumst við við
þessum nýja veruleika á merkingarbæran
hátt frá sjónarhorni kristinnar heimsmyndar?
Lausanne-hreyfingin í Evrópu leitast
við að bregðast við þessari þróun með
því að koma af stað ferli, sem með hjálp
Heilags anda getur breytt stöðu mála.
Við viljum hvetja á ferskan hátt til þess að
fagnaðarerindið verði boðað í öllum löndum
Evrópu. Við þráum að sjá biblíulegan
sannleika móta sérhvert svið evrópsks
samfélags. Og við viljum hvetja kristið fólk
til að hafa áhrif á allan þann hugmyndaheim
sem mótar lífsskoðun Evrópubúa um þessar
mundir.
Þetta viljum við gera með tvennum
hætti; með víðtækum samræðum í Evrópu
og með samveru leiðtoga í Evrópu sem
hittast augliti til auglitis.
Fyrsta skrefið er samræður og
svonefndir áhrifahópar. Þetta ferli hófst í
febrúar á þessu ári og við höfum gefið út
efni mánaðarlega með ákveðnum þemum
sem birst hafa á blogg-síðum, í greinum
eða hlaðvörpum. Þau sem eru í hverjum
hópi lesa eða hlusta og hittast síðan á 90
mínútna samveru á mánaðarfresti og ræða
þær hugmyndir sem varpað hefur verið fram
og biðja síðan saman fyrir heimsálfunni.
Síðan tekur hópurinn saman helstu atriði og
setur á vefsíðu Lausanne-hreyfingarinnar
til þess að ýta undir samræður þar á milli
hinna ýmsu áhrifahópa. Hóparnir sjálfir fóru
upprunalega af stað undir forystu þeirra
sem boðið var að mæta á ráðstefnuna í
nóvember 2021 en hvatt var til þess að
hver og einn myndaði 10-12 manna hóp.
Nú bjóðum við hverjum sem vill byrja með
svona hóp að fara í gang og taka þátt í
umræðunni. Lesendur Bjarma, sem hafa
áhuga á því, finna meiri upplýsingar hér að
neðan.
Í öðru lagi er síðan ráðstefnan í
nóvember á næsta ári. Hvað gerist
þegar rétt fólk með réttu hugmyndirnar
hittast á réttum tíma fyrir mikilvægasta
verkefni á jörð? Eitthvað stórkostlegt!
Lausanne-hreyfingin hefur í rúm 40 ár
fylgst með nýjum vináttutengslum, nýjum
frumkvöðlaverkefnum, nýjum hugmyndum
og hugtökum fæðast í tengslum við margs
konar samverur og samhug. Það er bæn
okkar fyrir þessari Evrópu-ráðstefnu.
Við söfnum saman forystufólki frá allri
Evrópu, körlum og konum, ungum og
öldnum, prestum, forstöðufólki samtaka
og kristniboðshreyfinga, fulltrúum fólks í
JANET SEWELL
Evrópuráðstefna
Lausanne 2021