Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 35

Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 35
dreifingunni, minnihlutahópa, áhrifafólks innan lista, ríkisstjórna, fjölmiðla og vinnustaða. Þetta er fólk sem myndi ekki endilega hittast annars og hafa að jafnaði ekki tækifæri til að tala saman og læra hvert af öðru. Með þessu tvennu, samræðum og samveru, þráum við að sjá fólk sjái sjálft, hittist, tali saman og sem afleiðingu þess að það taki til starfa þegar við göngum saman til verksins, að segja öðrum frá kröftugu fagnaðarerindinu í Evrópu samtímans, Evrópu hinni nýju. SJÁUM Okkur langar til að leiðtogar fái nýtt sjónarhorn á Evrópu, kynni sér rannsóknir og efni sem opnar augu þeirra fyrir raunverulegu samhengi evrópsks veru leika og hvernig við getum boðað fagnaðar- erindið á áhrifaríkan hátt meðal Evrópubúa. Við vörpum fram hugsjón og skilningi á Evrópu sem kristniboðsakri til þess að kirkjur og einstaklingar hafi verkfæri og hvatningu til að taka þátt í frumkvöðlastarfi á sviði kristniboðs. HITTUMST Okkur langar að ýta undir tengingar milli þjóða, kirkjudeilda, kynslóða, karla og kvenna, en einnig milli forystufólks í Evrópu og í dreifingunni. Markmiðið er að vera kveikjan að nýju samstarfi sem kallar fram ferskt frumkvöðlastarf á sviði boðunar um alla álfuna. TÖLUM SAMAN Við leggjum til pallborð til þess að deila, hlusta og læra saman, en einnig til að biðja og hlusta á Guð. Markmiðið er endurnýjun, endurnýjað traust á Biblíunni í staðbundum kirkjum, sem leið Guðs til að móta Evrópu og í krafti heilsteypts lífs lærisveina sem eru umbreyttir og þrá að breyta samfélaginu. STÖRFUM Síðast en ekki síst viljum við örva fólk til starfa. Markmiðið er ekki einingin út af fyrir sig heldur samstarf og samvinna um verkefnið að boða Evrópu fagnaðarerindið. Við ætlum að reyna að hvetja til stofnunar nýrra safnaða, nýrra samvinnu trúboðsátaka, frumkvæðis í leiðtogaþjálfun og ferskrar nýbreytni við að blanda okkur í öll svið evrópsks samfélags. Evrópa er breytt en fagnaðarerindið hefur breytt Evrópu oft áður. Með Guðs hjálp og í einingu göngum við fram til að breyta Evrópu einu sinni enn með því að fara saman og flytja kröftugt fagnaðarerindið í Nýju Evrópu. Ef þig langar að kynna þér betur umræðu hópana og hvernig þú getur tekið þátt í samræðum, heimsæktu þá gjarnan heimasíðuna okkar: w w w . l a u s a n n e e u r o p e . o r g / conversation HVER ER JANET? Ég heiti Janet Sewell. Ég fæddist á Íslandi en móðir mín er frönsk og faðir var enskur. Ég bjó hér þar til ég lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. Tveim vikum síðar fór ég til Grikklands og tók þátt í þriggja mánaða boðunarverkefni á vegum Hellenic Ministries (HM), sem endaði sem 15 ára dvöl og starf á Grikklandi sem kristniboði, en 14 þeirra var ég í fullu starfi fyrir HM: Verkefni mín voru allt frá því að vera persónulegur aðstoðarmaður og sjómaður til skipuleggjanda viðburða, vefsíðuþróun og trúvörn. Ég sinnti einnig ljósmyndum og hljóðstjórnun svo eitthvað sé nefnt. Sumarið 2016 bauðst mér að sækja ráðstefnu Lausanne-hreyfingarinnar fyrir unga leiðtoga í Jakarta (YLG), sem hugsuð var fyrir fólk í forystu á aldrinum 25-35 ára. Ráðstefnan breytti lífi mínu og ég bauð mig fram sem sjálfboðaliða fyrir starf meðal ungra leiðtoga Evrópudeildar Lausanne Árið 2018 hætti ég hjá HM og fór að vinna í fullu starfi fyrir Lausanne Evrópu til að undirbúa aðdragandann og ráðstefnuna sjálfa sem kynnt er í greininni: Kröftugt fagnaðarerindi — Ný Evrópa. Þar er ég hluti af samhæfingarhópi sem stýrir þessu verkefni ásamt fimm öðrum frá Evrópu og aðalnefndinni þar sem ég sé um verklegan undirbúning og þróun vefsins. Þetta er á margan hátt draumavinnan mín, sem frönsk, ensk og íslensk með 15 ár baki á Grikklandi lít ég á mig sem evrópskan kristniboða og mig hefur alltaf langað að vinna á þver-evrópskum vettvangi. Ég er svo spennt og einnig auðmjúk yfir að Drottinn skuli hafa kallað mig til að vera hluti af undirbúningshópnum! Í fyrra giftist ég persneskum eiginmanni mínum og við fluttum til Lundúna til þess að hefja safnaðarmyndun meðal Írana þar – starf sem vex dag frá degi. Samtímis vinn ég að MA-ritgerð um samtíma kristniboðsfræði sem beinir sjónum að Evrópu. Til að kynnast okkur betur getur þú heimsótt www.totaxidi.org bjarmi | apríl 2021 | 35 Janet (fremst til vinstri) ásamt öðrum þátttakendum á ráðstefnu í Jakarata fyrir nokkrum árum

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.