Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 24

Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 24
| bjarmi | apríl 202124 RAGNAR GUNNARSSON: „Starf meðal flóttafólks hér á landi er alvöru kristniboðsstarf“ VIÐTAL VIÐ KJARTAN JÓNSSON UM NÝÚTKOMNA BÓK HANS UM FLÓTTAMENN Nýverið kom út bókin Flóttamenn. Þjónusta kirkna og kristilegra samtaka á Vesturlöndum í þeirra þágu. Höfundur bókarinnar er dr. Kjartan Jónsson, sóknarprestur í Tjarnaprestakalli í Hafnarfirði og kristniboði í Keníu í mörg ár. Fulltrúi Bjarma hafði samband við Kjartan til þess að fræðast meira um bókina og fyrst var að fá að vita hver var kveikjan að því að hann skrifaði þessa bók? Ég fór í námsleyfi veturinn 2019- 2020 og mér fannst Guð leggja mér á hjarta að kynna mér málefni flóttamanna. Bakgrunnur minn skiptir að sjálfsögðu máli. Ég var kristniboði í Keníu í 12 ár þar sem ég lifði og hrærðist í framandi menningu, lærði þvermenningarleg fræði við Fuller Theological Seminary, School of Intercultural Studies í Kaliforníu og síðar mannfræði við Háskóla Íslands. Ég hef mikinn áhuga á menningu annarra þjóða og sem kristniboði höfða innflytjendur, sérstaklega flóttamenn, til mín. Mér finnst mér renna blóðið til skyldunnar að leggja mitt af mörkum til að þeir fái tækifæri til að kynnast kristinni trú. Í seinni tíð hefur innflytjendum og hælisleitendum fjölgað mjög hér á landi og því má segja að kristniboðsakurinn sé að einhverju leyti kominn í nágrenni okkar. Kristniboðssambandið hefur verið brautryðjandi í að bjóða útlendingum ókeypis íslenskunámskeið og þannig lagt sitt af mörkum til að hjálpa þeim að aðlagast íslensku samfélagi sem er mjög mikilvæg samfélagsþjónusta. Þar er fræðsla um kristna trú og öllum er velkomið að kynnast og taka þátt í öðru starfi Kristniboðssambandsins. Svona starf vindur upp á sig, fólk kynnist og fær áhuga á að stofna hannyrðahópa, biblíulestrarhópa o.s.frv. Fyrir mörgum er þetta eina samfélagið sem þeir hafa við fólk utan heimilisins. Sjálfur hef ég boðið upp á íslensku- námskeið fyrir útlendinga í Ástjarnarkirkju þar sem ég er sóknarprestur og hef góða reynslu af því. Þó að ég hafi lesið nokkrar bækur um málefni flóttamanna á undanförnum árum var ég illa að mér um þennan málaflokk og einsetti mér að reyna að setja mig vel inn í efnið í námsleyfinu og skráði mig meðal annars í Háskóla Íslands til að sækja námskeið um þessi mál. Þar sem ég var í launuðu leyfi fannst mér ég þurfa að skila einhverju af mér eftir veturinn og ákvað að skrifa ritgerð um efnið. Eftir því sem ég las fleiri bækur og greinar og hlustaði á góða fyrirlestra mótaðist efnið í huga mér. Ég vildi skrifa efni sem væri fræðandi og hagnýtt fyrir almennt kirkjufólk. Því ákvað ég að kynna mér hvað aðrar kirkjur og kristileg félög í öðrum löndum gera fyrir flóttafólk til að gefa kirkjufólki hugmyndir um hvað hægt væri að gera hér

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.