Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 33

Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 33
bjarmi | apríl 2021 | 33 en fann síðar sköpunargáfunni farveg í frjálsara formi. Í ljóðunum birtist hann oft einn á ferð í skóginum með sína djúpu skynjun á sköpun Guðs eins og gæti átt við í ljóðinu Guðsþjónusta: Ég sit hér í kirkju úr skógarilmi, dögg og degi. Bláklukkan hringir til messu, hljóðlausum slögum. Presturinn er án andlits og predikunin án orða. Heilagt sakramentið er vorangan jarðar. Laufsöngvari tístir við hreiður, bjalla klífur upp strá. Og djúpt í blessaðri þögninni heyri ég lífshjartað slá. Í heimi okkar er að finna traust, ljós yfir stórt og smátt. Þýski guðfræðingurinn Christian A. Schwarz, aðalhöfundur svokallaðrar náttúrulegrar safnaðaruppbyggingar, hefur sett fram kenningar um níu blæbrigði trúarlegrar skynjunar okkar.2 Um þessar skynjanir má nota líkinguna um að Guð „sendi út á níu rásum“ en við tökum oft illa á móti nema á einni eða fáum þeirra. Tilfinningin eða skynjunin gagnvart Guði er sterkust á mismunandi sviðum hjá okkur. Hans Børli er búinn því sem kalla má trúarskynjun skynhrifa. Það sem hann sér og heyrir beinir huga hans að því sem er hærra og æðra. Hið smáa vísar til hins stóra. Maurarnir sem feta slóð sína á skógarbotninum gætu vísað til brauta stjarnanna. Og löngunin og vonin eftir lausn alls er greinilegt stef eins og þetta ljóð vitnar um: Jafnvel dimmasta miðnæturstund veit að sólin er alltaf hinum megin, að snjórinn á tindunum á brátt að glóa í nýrri dögun, dýrin sem hafa veitt um nóttina halda í fylgsnið. Þetta veit nóttin. Og hjartað á þessa vissu með henni um stund. Og síðar – síðar verða mörkin máð út. Gjárnar fylltar á ný. Lóðin tekin af voginni. Enginn þungi framar né hróp og aðskilnaður því mörkin hafa verið afmáð. Lönd Lífs og Dauða samtengd með skínandi brú úr ljósi fastastjörnu. Enginn þarf lengur ljós frá sól eða lampaskin því auglit Guðs lýsir. Børli beinir næmri skynjun sinni einnig að mannlífi og þjóðfélaginu og samúðar 1https://www.tf.uio.no/forskning/publikasjoner/nytt-norsk-kirkeblad/nnk-i-pdf/nnk-2018-4.pdf (sótt 5/2 ´21). 2Sjá t.d. Kjetil Sigerseth. Engasjert trosliv: Mitt, ditt og menighetens trosspråk, K-vekst forlag, Noregi 2019. 3Bókin kom út hjá Félagi ljóðaunnenda á Austurlandi 2019. gætir gagnvart þeim sem standa höllum fæti og þá einnig gagnrýni á félagslegt óréttlæti. En auðvelt er að finna marga girnilega lífsviskumola í ljóðunum. Eitt er nauðsynlegt – hér í þessari okkar erfiðu veröld heimilislausra og án athvarfs: Að setjast að í sjálfum sér. Halda inn í myrkrið og þrífa sótið af lampanum. Þannig að fólk á ferð geti séð ljósi bregða fyrir í byggðum augum þínum. Þessi ljóð eða ljóðabrot eru úr bókinni, Þegar fólkið er farið heim, en þar er að finna um 120 ljóð Børlis í þýðingu greinarhöfundar.3 Þar er einnig inngangur um Hans Børli sem gefur fyllri mynd af honum en næsta tilviljanakennd brot þessarar greinar.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.