Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 26

Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 26
| bjarmi | apríl 202126 vernd hér á landi með því að skýla sér á bak við s.k. Dyflinnarreglugerð sem gengur út á að það land sem flóttamenn koma fyrst til á evrópska efnahagssvæðinu skuli bera ábyrgð á þeim. Eins og kunnugt er, er svo til ómögulegt fyrir flóttamenn að komast beint til Íslands frá löndum utan svæðisins. Flestir koma þeir til landa í S-Evrópu, aðallega Grikklands og Ítalíu. Vegna tregðu margra landa í norðurhluta álfunnar til að taka á móti flóttafólki er byrðum vegna þess mjög ójafnt dreift og löndin í suðri sitja uppi með flóttafólkið. Yfirvöld í löndum S-Evrópu hafa gagnrýnt þessa reglugerð og segja hana ekki ná tilgangi sínum sem er að koma í veg fyrir að flóttamenn sæki um hæli í mörgum löndum samtímis. Framkvæmdastjóri Lútherska heimssambandsins Martin Junge segir hana vera dautt plagg því eining Evrópu við móttöku þeirra virki ekki. Efnahagur Ítalíu og Grikklands er þannig að þessi lönd eru ófær um að veita öllu því flóttafólki sem þangað hefur komið kost á viðunandi lífskjörum. Ísland hefur reynt að komast hjá því að axla ábyrgð í þessum málaflokki þó að aðeins hafi þokast í rétta átt síðustu misseri. Þróun öfgaþjóðernisstefnu í Evrópu og víðar er uggvænleg. Þeir sem aðhyllast hana óttast flóttamenn og útlendinga og telja þá ógn við öryggi, efnahag, menningu og trúarbrögð landanna. Þeir ala á útlendingahatri. Það hefur verið einkar ánægjulegt að kynna sér hvað kirkjur og kristileg félög gera fyrir flóttafólk og hrífandi að kynnast fólki sem leggur sumt allt í sölurnar til að þjóna þessu fólki sem best. VIÐ HVERJA Á BÓKIN ERINDI? Bókin er fyrst og fremst ætluð kirkjufólki en hún gagnast einnig þeim sem vilja fræðast um orsakir flóttamannavanda samtímans og þróun á stefnu stjórnmálaflokka í Evrópu í málefnum hælisleitenda og nýbúa. HVERJU VONAST ÞÚ TIL AÐ LESTUR BÓKARINNAR BREYTI? Ég vonast til þess að bókin uppljúki ýmsu fyrir fólki er snýr að málefnum flóttamanna, skapi umræðu í söfnuðum landsins, í þjóðkirkjunni og utan hennar, um málefni útlendinga og flóttafólks og að starf fyrir þetta fólk verði jafn sjálfsagt í söfnuðunum og annað starf, til dæmis starf fyrir unglinga og eldri borgara. Einnig vona ég að þeir sem standa fyrir kristniboðsstarfi á erlendri grundu líti á starf á meðal þessa fólks hér á landi sem alvöru kristniboðsstarf sem leggja beri áherslu á. HVAÐA VIÐBRÖGÐ HEFUR ÞÚ FENGIÐ? Viðbrögðin hafa verið mjög jákvæð, umfram mínar væntingar, sem er einkar ánægjulegt. AÐ LOKUM: HVAR GETUR FÓLK NÁLGAST BÓKINA? Salt ehf, útgáfufélag í eigu Kristniboðssam- bandsins gefur bókina út og hún fæst m.a. á skrifstofu Kristniboðssambandsins, á Basarnum, nytjamarkaði SÍK í Austurveri, í Jötunni, Hátúni 2 og Kirkjuhúsinu, Katrínartúni 4, bókaverslun Forlagsins og hjá Pennanum á höfuðborgarsvæðinu, í Keflavík, á Akranesi og Akureyri. Einnig má panta hana á saltforlag.is. Bjarmi þakkar Kjartani spjallið og hvetur að sjálfsögðu alla til að kynna sér efni bókarinnar með því að lesa hana. ÞRÓUN ÖFGA­ ÞJÓÐERNIS­ STEFNU Í EVRÓPU OG VÍÐAR ER UGGVÆNLEG. ÞEIR SEM AÐHYLLAST HANA ÓTTAST FLÓTTAMENN OG ÚTLENDINGA OG TELJA ÞÁ ÓGN VIÐ ÖRYGGI, EFNAHAG, MENNINGU OG TRÚARBRÖGÐ LANDANNA

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.