Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 13

Bjarmi - 01.04.2021, Blaðsíða 13
bjarmi | apríl 2021 | 13 hafði aldrei séð áður. Þetta „ljós“ beindi mér í þá átt að leita lýðræðis, frelsis, tækifæra og sæmdar. Allir Norður-Kóreumenn í Kína eiga á hættu að nást og verða sendir til baka til Norður-Kóreu. Ég var handtekinn við landamæri Mongólíu og sendur til baka til Norður-Kóreu. Þar var ég settur í fangelsi og yfirheyrður. Ég lifði eldraunina af en upplifði hryllileg illvirki, hræðilegar pyndingar og ómennska meðferð. Þegar ég flúði til Kína í annað sinn var ég tekinn og fangelsaður í Sjanghæ. Það var niðamyrkur í hjarta mínu því ég vissi að mín beið lífstíðarvist í pólitískum fangabúðum eða að verða tekinn af lífi. Ég reyndi meira að segja að fremja sjálfsvíg með svefntöflum fremur en að mæta aftöku — annaðhvort með hægum eða snöggum hætti — af hálfu stjórnvalda. VONAÐ Á GUÐ Þrátt fyrir vonleysi mitt var Guð með sterkum hætti viðriðinn líf mitt. Það hófst í fangaklefanum. Einn af samföngum mínum var glæpamaður frá Suður-Kóreu. Hann stakk upp á að ég skyldi lesa Biblíuna og biðja til Guðs að ég kæmist í gegnum þetta. Ég hafði aldrei beðið áður og ég vissi ekkert hvernig ætti að gera það. Hann sagði: „Segðu bara amen á eftir hverri ósk.“ Alltaf þegar ég kraup í bæn til Guðs í fangelsinu flutu augu mín í tárum út af því hvernig komið var fyrir mér. Ég bað hann um frelsi og lausn. Guð var sá eini sem ég gat snúið mér til og vonað á. Ég vissi ekki einu sinni hver eða hvað Guð væri eða hvort hann væri yfirleitt til. En ég gat ekki snúið mér neitt annað. Ég sagði Guði að ef hann gæfi mér frelsi mitt myndi ég helga honum allt líf mitt. En ef ég yrði sendur aftur til Norður-Kóreu, sagði ég honum að ég mundi staðfastlega neita því að hann væri til. Eftir nokkurn tíma í fangelsinu komu tveir menn í heimsókn. Þeir voru frá alþjóðasamfélaginu. Þeir sögðu mér að í gangi væri alþjóðleg bænaskrá þar sem þrýst væri á Kína að framselja mig ekki. Ég var einn af fáum sem Kína hafði ákveðið að senda áfram til þriðja ríkis í staðinn fyrir Norður-Kóreu. Þetta var svar við öllum bænum mínum. Roosevelt Bandaríkjaforseti sagði eitt sinn: „Frelsi er ekki hægt að veita. Það verður að vinna sér það inn.“ Þegar ég horfi til baka hugsa ég um hvernig ég náði að flýja tvisvar frá Norður-Kóreu og hvernig ég komst í gegnum fangavistina. Þegar ég hugsa um það, var það á endanum Guð sem veitti mér sannarlegt frelsi og svaraði bænum mínum um að komast af. DRAUMUR UM HIÐ ÓMÖGULEGA Guð lætur hið ómögulega gerast. Ég er frjáls maður og get vonað og látið mig dreyma aftur. Ég trúi að framtíðin sé þeirra sem trúa á fegurð drauma sinna. Draumur minn um frelsi Norður-Kóreu knýr mig á hnén á hverjum degi. Ég bið til Guðs að hann rífi niður fangabúðirnar og frelsi hundruð þúsunda fanga, þar á meðal tugi þúsunda kristinna. Mig langar að sjá Norður-Kóreu verða land sem er þéttskipað þúsundum fagurra kirkna þar sem sérhverjum manni sé frjálst að tilbiðja Guð. Þetta trúfrelsi myndi sýna að Norður-Kórea væri sannarlega frjáls og að frosin hjörtu beggja Kóreulandanna hefðu bráðnað í hita kærleika Guðs. Fagur er arkitekt nýs lands Norður-Kóreu og Sameinaðrar Kóreu. Hann heitir Jesús. Sérhver Norður-Kóreubúi býr við sama gang lífs og dauða eins og ég. Það er vegna þess að núverandi Verkamannaflokkur hefur hlaupist frá frumskyldum sínum: Að vernda borgarana frá hungri, kúgun og ofsóknum. En Guð hefur ekki gleymt þjóðinni. Fólkið hans og samfélagið halda áfram að færa Norður-Kóreubúum von. Ég fékk að upplifa þetta. Þegar ég fór fyrst til Kína gáfu hinir trúuðu mér brauð, súpu, föt og bænir. Meðan Guð og börnin hans vinna með þeim hætti veit ég að enn er von fyrir Norður-Kóreubúa. (Heimild: https://www.premierchristianity.com/ Blog/I-escaped-from-North-Korea, Böðvar Björgvinsson þýddi). GUÐ LÆTUR HIÐ ÓMÖGULEGA GERAST. ÉG ER FRJÁLS MAÐUR OG GET VONAÐ OG LÁTIÐ MIG DREYMA AFTUR

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.