Bjarmi - 01.04.2021, Qupperneq 10
| bjarmi | apríl 202110
Kynt undir ofsóknum
með lygum gegn
kristnu fólki
Í grein á vefsíðu Premier Christianity
bendir dr. Ron Boyd-MacMillan, sem er
framkvæmdastjóri skipulegra rannsókna
hjá Open Doors International á þátt lyga í
að kynda undir ofsóknum.1
Þegar á dögum frumkirkjunnar sætti
kristið fólk ofsóknum. Margir sjá upphaf
ofsókna í 8. kafla Postulasögunnar í
Biblíunni þar sem stendur í fyrsta versi:
„Á þeim degi hófst mikil ofsókn gegn
söfnuðinum …“. En í rauninni hófust
þær í Post 6.11 þegar hópur manna í
samkundunni í Jerúsalem dreifði lygum
um djákna að nafni Stefán og báru að
hann væri „alltaf að tala gegn þessum
heilaga stað (musterinu) og lögmálinu“.
Hvorugt hafði hann gert. Það sem hann
hafði gert var að tala gegn þeirri trú að
musterið væri eini dvalarstaður Guðs á
jörðinni og að allir sem þangað kæmu
væru hólpnir. Stefán varð fyrsti kristni
píslarvotturinn og miklar ofsóknir brutust
út gegn söfnuðinum í Jerúsalem í kjölfarið.
Þessu er eins farið á okkar tímum.
Kristið fólk um allan heim er fórnarlömb
áróðursherferða sem byggðar eru á
lygum. Víða leiða þessar lygar til ofsókna.
Á sumum svæðum í Mið-
Austurlöndum er ein af lygunum sem
lifa góðu lífi: „Kristindómurinn er erlend
trúarbrögð, Trjójuhestur sem styður
Ísrael og bandarísk öfl.“ Í löndum eins og
Egyptalandi finnst því leiðtogum kristins
fólks nauðsynlegt að fordæma kröftuglega
framferði bæði Ísraels og Bandaríkjanna
einkum af því að, eins og koptískur biskup
orðaði það: „Annars munu þeir halda að
við séum andmúslímsk.“
Í Írak er oft sagt að þeir kristnu
vilji bara ná olíunni. Í Íran segir fólk
að hinir kristnu séu „tæki hins Mikla
Satans, Bandaríkjanna“. Í Afríku sunnan
Sahara eru flestir kristnir drepnir fyrir
trú sína á hverju ári vegna fjölda öfga-
íslamistahreyfinga eins og Boko Haram
og Al Shabaab. Múgurinn og drápsmenn
eru hvattir með lygum eins og: „Hinir
kristnu komu með covid til þess að drepa
múslíma“ eða „þeir kristnu vilja bara stela
landinu okkar.“ Þessar lygar drepa. Á
síðasta ári voru 4761 kristnir drepnir fyrir
trú sína. Á þessu svæði voru 91% þeirra
og er aukningin þar um 60% frá árinu á
undan.
Í Asíu sunnan fjalla er algeng lygi
að „kristindómurinn vaxi aðeins sökum
ósiðlegra eða þvingaðra trúskipta og þeir
vilji yfirtaka lönd okkar með launráðum.“
Þannig hrópa hindúatrúar öfgamenn á
Indlandi og búddatrúar þjóðernissinnar
á Sri Lanka. En staðreyndin er að
vöxtur kristninnar meðal fátækasta hluta
íbúanna er helsta ógnin við áætlanir
öfgamannanna.
Á Indlandi koma til dæmis 60% hinna
kristnu úr hinum svokallaða „Dalita“-
þjóðfélagshópi — „lágkastanum“2 eða
hinum „ósnertanlegu“ sem verða að vinna
óhreinu störfin sem „hákastastéttirnar“
geta ekki unnið því annars hryndi öll
þjóðfélagsskipanin.
Það er þægilegra að halda því fram
að þessir hópar hafi verið tældir burt
með „ósiðsamlegum hætti“ heldur en að
viðurkenna að önnur trúarbrögð efli og
annist hina fátæku betur. Aðrar lygar eru
settar fram um að „hinir kristnu vilji eyða
öllum hindúum“.
Um tíma var því haldið fram í
kommúnistaríkjunum Norður-Kóreu og
Kína að kristindómurinn væri bara fyrir
aumingja og um útlend trúarbrögð að
ræða, þrátt fyrir að kristindómurinn hefði
komið til Kína árið 635 en marxisminn
ekki fyrr en eftir miðja 19. öld.
Á Vesturlöndum er einnig haldið
fram þessari lygi: „Kristindómurinn er
óumburðar lyndur, andvísindalegur og því
beri að halda honum algerlega burt frá hinu
opinbera lífi.“ Þessu sjónarmiði er oftast
haldið fram af elítu trúleysingja sem eru
uppteknir við þá hugsun að kristindómur
leiði af sér órökræna trú á óumbreytanleg
frumhugtök og leiði þannig til ófrjálslynds
einstrengingsháttar sem ráðist gegn sjálfu
eðli lýðræðisins.
LYGAGREINING OG HVERS VEGNA
HÚN ER NAUÐSYNLEG
Hvaða lygi er það sem ógnar því
að jaðarsetja kirkjuna sem við
tilheyrum? Það er mikilvægt að
nefna hana á nafn, takast á við
hana og hrekja svo að hún
nái ekki að springa út sem
fullbúin ofsóknaráætlun.
Hin ofsótta kirkja
getur kennt okkur
tvennt mikilvægt um
það hvernig takast eigi
á við lygar. Í fyrsta lagi
heyrast þessar lygar aðeins
þegar óvininum er ógnað af
vexti kristninnar. Eða eins og
kínverskur prestur sagði: „Þegar
þeir ljúga upp á okkur tökum við því
sem hæsta hrósi að þeir hafi þurft að
grípa til þessara örþrifaráða til þess að
gera okkur lífið erfitt — við vitum að þeir
óttast fjölda meðlima kirkjunnar sem er
að nálgast 100 milljónir.“ Hann bætti við:
„Leyfðu heiminum að ljúga upp á þig … líf
þitt sem trúaðrar manneskju ætti að vera
honum ógn.“
Í öðru lagi: Guð snýr lygum óvina
okkar í ást hjá okkur til þeirra. Stefán
hélt harða ræðu en er hann dó undir
grjótkasti sá hann dýrð Guðs og hafði
fyrirgefningarorð á tungu: „Drottinn, lát
þá ekki gjalda þessarar syndar.“
Tuttugu og tvö ár eru liðin frá
hræðilegu morði á áströlskum kristniboða
á Indlandi sem var brenndur lifandi ásamt
tveim ungum sonum sínum 22. janúar
1999 af æstum múg. Það sem hann
hafði unnið til saka var að hjálpa fólki
Fréttir af ofsóknum