Bjarmi - 01.04.2021, Síða 11
bjarmi | apríl 2021 | 11
sem þjáðist af líkþrá (holdsveiki) en öfga-
hindúar breiddu út þá lygi að hann hefði
neytt hindúa til trúskipta. Indverska þjóðin
var slegin en hin syrgjandi ekkja hans,
Gladys, fór í ríkissjónvarpið og fyrirgaf
böðlum hans með þessum eftirminnilegu
orðum: „Við skulum brenna hatrið… og
kveikja elda kærleika Krists“.
Kristniboði nokkur á Indlandi sagði:
„Hún gerði meira til að útbreiða fagnaðar-
erindið á Indlandi með
einni setningu en
flest okkar
h ö f ð u
g e t a ð
á nokkrum
öldum.“
Ofsóknir — og lygarnar
sem kveikja þær — eru gleymt vaxtarafl
kirkjunnar Hlustum á hina ofsóttu kirkju
og göngum veg hinna sigrandi!
„Orvellsk“ martröð
vofir yfir hinum kristnu
í Kína
Stjórnvöld í Kína safna gífurlegu
magni viðkvæmra upplýsinga og gera
nákvæmar andlitsgreiningar til þess
að fylgjast með því sem hinir kristnu
aðhafast, segir Julia B, sem vinnur við að
greina ofsóknir á hendur kristnu fólki um
allan heim. Hún segir að nauðsynlegt sé
að biðja fyrir bræðrum okkar og systrum
þar í landi.
Hún gaf eiginmanni sínum nýverið
lítinn USB-kubb sem skipuleggur
myndasöfn fólks á netinu með andlits-
greiningartækni sem unnin er með
gervigreind. Tækið getur þekkt og merkt
andlit fólks og þeirra sem þeim tengjast,
allt að 100 andlit á einni mynd. Vissulega
hefur þetta verið happafengur fyrir
sístækkandi myndasöfn okkar á netinu.
En tækninni fylgja líka gallar. Stjórnvöld
Kína nota gervigreind og svipaða tækni
til að fylgist með kristnum mönnum. Talið
er að hátt í 100 milljónir kristinna manna
séu í Kína sem eru fleiri en skráðir félagar í
kínverska kommúnistaflokkinn og það sé
áhyggjuefni. Hin kristnu virðast vera stjórn
Xi Jinping forseta ógn vegna þess að þau
tilbiðja æðri mátt en hann og flokkinn.
Þetta er alltof mikill fjöldi til þess að
geyma í fangelsum — eins og gerðist
með múslímska Uighur-fólkið sem verið
hefur í fréttum undanfarna mánuði. Þess
í stað safna yfirvöld ókjörum af nánum
persónu legum gögnum með handvirkri
leit, andlits greiningar mynda vélum og
fleiri aðferðum — allt án sýnilegra laga-
heimilda. Allt er þetta notað til að stunda
„forspárlöggæslu“ — sem minnir á mynd-
ina Minority Report þar sem sérdeild
lögreglunnar nær glæpamönnum með
fyrir fram vitund um athafnir þeirra og
sem aflað er með sálfræðiþekkingu.
Upplýs ingarnar notar lögreglan í Kína til
að greina þá sem hugsanlega þyrfti að
fangelsa með því að merkja við hundruð
þúsunda manns til að sæta rannsóknum,
t.d. vegna þess að þeir nota ákveðin
smáforrit í símanum.
Rétt eins og Amazon getur ákveðið að
ég sé manneskja sem myndi hafa gaman
af Ed Sheeran, geta yfirvöld ákveðið að þú
sért manneskja sem þeim líkar ekki við og
gripið síðan til aðgerða. Í Kína eru áætlanir
um að koma á fót „Social Credit System“
(SCS), félagslegum traustsreikningi, sem
yfirvöld gætu notað til að meta hegðun
fólks sem þjóðfélagsþegna. Góðum
þegnum væri launað en slæmum hegnt.
Ein þeirra leiða sem meta mætti hegðun
fólks eftir er sú, hvað skoðað er á alnetinu,
hvers er leitað þar. Það gæti haft áhrif á
hvort sá hinn sami gæti notið bóta eða
ellilífeyris eða fengið vinnu.
EKKI EINN AF OKKUR
Kína er ekki eina landið sem horfir til
tækifæra með þessari nýju tækni. Á
Indlandi eru líftæknimiðuð kerfi að færast í
aukana og á öðru kjörtímabili stjórnar undir
forystu Bharatiya Janata flokksins eflist
hugmyndafræði öfgaþjóðerniskenninga
hans.
Indland hefur tekið upp nýtt
kennitölukerfi þar sem hver einstaklingur
hefur 12 stafa númer. Því til stuðnings
höfðu stjórnvöld áætlun um að innleiða
andlitsgreiningarkerfi í fyrra. Þau segja
að það eigi bara að auðvelda lögreglunni
það sem hún nú þegar vinnur að, að ná
glæpamönnum og að finna týnd börn.
En hinir kristnu á Indlandi, og reyndar
múslímar sömuleiðis, hafa góðar ástæður
til þess að hafa áhyggjur af þessum
leik. Staðfest eru að minnsta kosti 447
ofbeldisatvik og hatursglæpir gegn þeim
á síðasta ári. Gerendur njóta refsileysis,
ýmist vegna aðgerðaleysis lögreglunnar
eða beinna afskipta hennar. Þeir hafa
litlar vonir um að þetta eftirlitskerfi
verði til nokkurs annars en að herða
þumalskrúfurnar á þeim minnihlutahópum
sem tilheyra ekki hindúismanum, eins
og sást vel í Assam og Kashmir og
með hinum nýju lögum um breytingar á
ríkisborgararétti, en þau vísa í fyrsta sinn
í þessu veraldlega lýðveldi til trúarbragða.
Það er siðferðilegt stórmál hvernig
gervigreind verði notuð í náinni framtíð,
en nú þegar er það að breyta umhverfi
okkar — til góðs og ills. Milljónum kristins
fólks um allan heim birtist gervigreindin
sem mögulegt tæki handa öðrum til að
kúga það og jafnvel ofsækja. Það þarf á
fyrirbænum okkar að halda.
(Heimild: https://www.premierchristianity.com/Blog/
China-s-Christians-are-stepping-into-an-Orwellian-
nightmare-we-need-to-pray-for-them). Þýðing:
Böðvar Björgvinsson.
1 https://www.premierchristianity.com/Blog/9-lies-that-fuel-Christian-persecution?
2 Kasti er alþjóðlegt orð úr indverskum málum um „stéttir“ sem fólk fæðist inn í og er í til æviloka.