Bjarmi - 01.04.2021, Page 15
bjarmi | apríl 2021 | 15
biblíufræðari og hjálpað áheyrendum
að tileinka sér boðskapinn og vaxa í
samfélaginu við Jesú Krist. Hún tilkynnti í
mars að hún segði nú skilið við kirkjudeild
sína, Southern Baptists, en það hefur
verið kirkjan hennar. Allra síðustu árin
hefur hún gagnrýnt ýmislegt, bæði hvað
snertir stöðu og ábyrgð kvenna og hvernig
þrengt hefur verið að henni og hún mætt
ómaklegri gagnrýni. Jafnframt hefur
hún gagnrýnt vaxandi þjóðernishyggju
með kristinni tilvísun meðal evangelískra
manna almennt. Sú gagnrýni hennar
varð sérstaklega áberandi í aðdraganda
síðustu forsetakosninga. Í desember sem
leið sendi hún frá sér ákall til fylgjenda Jesú
að hætta að styðja Donald Trump forseta
og röksemdafærslur hans. „Ég hef aldrei
séð annað eins í Bandaríkjunum, jafn
ótrúlega seiðandi og hættulegt gagnvart
heilögu fólki Guðs eins og Trump-ismann.
Þessi kristilega þjóðernisstefna er ekki frá
Guði, hættið að styðja hana.“
Í viðtali við Religion News Service
sagist hún taka skrefið að fullu og segja
sig úr kirkjudeild Southern Baptists. „Ég
er enn baptisti en get ekki talið mig hluta
af Southern Baptist lengur. Mér þykir
mjög vænt um marga þar og marar kirkjur
eða söfnuði en sumt af því sem komið
hefur upp þar get ég ekki samþykkt. Beth
hefur einnig slitið samstarfi við Lifeway,
útgáfudeild kirkjudeildarinnar. Sumir hafa
líkt brotthvarfi hennar við brotthvarf Harry
prins úr bresku konungshirðinni. Ýmsum
kom þetta skref á óvart enda missti
kirkjudeildin „eitt sinna björtustu ljósa og
rödd vonar um endurnýjun og vakningu.“
(Heimild: premierchristian.news og
eterenitynews.com)
Kvikmyndin Pyntaður vegna Krists (Tortured
for Christ) er nú að gengileg á netinu í boði
Voice of the Martyrs og Lifeway. Myndin
segir sögu manns sem var í fangelsi
kommúnista í 14 ár án þess að bugast
og snúa baki við trúnni. Kvikmyndin færir
áhorfandanum afar kröftugan vitnisburð
prestsins Richards Wurmbrands.
Áhugasamir geta skráð sig og fá þá
aðgang að kvikmyndinni. Gefa þarf upp
netfang sem notað verður til að senda
viðkomandi efni í kjölfarið en auðvelt er að
skrá sig af þeim lista hvenær sem er. (Sjá
https://www.persecution.com/tfcmovie-
event/?_source_code=EL07B20B).
Kynnignarræmu myndarinnar má sjá á
YouTube.com.
Pyntaður vegna Krists