Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.04.2021, Qupperneq 22

Bjarmi - 01.04.2021, Qupperneq 22
| bjarmi | apríl 202122 Gangir þú gegnum vötnin REYNSLUSAGA UM VERND OG BJÖRGUN SVERRIR AXELSSON Eftirfarandi vitnisburður var upphaflega fluttur á fundi Aðaldeildar KFUM í Reykjavík fyrir rúmum 40 árum. Hann birtist í Bjarma árið 1981. Sverrir var á sínum tíma í vafa um hvort þetta skyldi birta á prenti þar sem hann óttaðist að menn skildu ekki þá djúpstæðu reynslu sem hann varð fyrir og merkingu hennar fyrir líf hans og trú. Ritnefnd Bjarma þótti tilhlýðilegt að minnast hans með því að endurbirta vitnisburðinn, en Sverrir Ingi Axelsson vélfræðingur lést í nóvember síðastliðnum, 93 ára að aldri. Hann var mjög virkur í starfi KFUM og KFUK og eftir hann liggja óteljandi handtök í Vatnaskógi og víðar. Sama má segja um konu hans Ásu Þorsteinsdóttur en hún lést 2016. Sverrir var traustur, maður útsjónarsemi og verklegra framkvæmda. Með nærveru sinni, verkum og orðum varð hann mörgum hvatning til að leggja sitt af mörkum. Hann tjáði þakklæti sitt með það sem hann kunni að meta. Þar á meðal voru þakkarorð fyrir eitt og annað sem birtist í Bjarma. Kjölfesta lífs hans var trúin á hinn krossfesta og upprisna frelsara, Drottin Jesú Krist, eins og fram kemur í orðum hans. ATBURÐURINN Það var kaldan skammdegismorgun við Reykjavíkurhöfn í nóvember 1961 þegar þessi atburður átti sér stað er ég ætla að segja hér frá. Tíð hafði verið mjög erfið þennan vetur. Sífelldir stormar og óvenju mikil frost, svo sund og vogar hér í kring voru ísilögð. Á þessum árum var ég vélstjóri hjá Reykjavíkurhöfn og starfaði á ýmsum bátum hennar. Þegar ég kom til vinnu þennan morgun, var verið að vandræðast yfir því að það vantaði bát til að aðstoða við bindingu á olíuflutningaskipi, sem leggja átti hér út við Örfirisey, svo hægt væri að losa farm þess í olíugeyma, sem þar eru. Sá er vinna átti í bátnum var eitthvað forfallaður, svo að ég bauðst til að fara með bátinn. Um borð tók ég tvo fullorðna menn, sem eru þessu starfi þaulvanir og unglingspilt, sem ég hefi hvorki séð né heyrt síðan. Haldið var sem leið liggur út úr höfninni og á þann stað er leggja átti skipinu. Eitthvað vorum við síðbúnir, því þegar komið var út var skipið komið og beið þess að settur væri út belgur á ákveðinn stað svo hægt væri að láta akkerið falla. Allt fór þetta fram samkvæmt áætlun um þessa hluti og var nú siglt að belg, sem festur var

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.