Bjarmi - 01.04.2021, Qupperneq 28
| bjarmi | apríl 202128
GUÐMUNDUR KARL BRYNJARSSON
Brennandi runni
og furða á fjalli
Prédikun flutt í útvarpsguðsþjónustu
í Lindakirkju á síðasta sunnudegi eftir
þrettánda, 24. janúar 2021. Textar dagsins
voru eftirfarandi: Lexía úr 2. Mósebók 3.1-
15, pistill úr Opinberunarbókinni 22.12-14
og guðspjall úr Matteusarguðspjalli 17.1-9.
Ég ætla að leggja fyrir ykkur skoðana-
könnun:
Hefur þú einhvern tíma á lífsleiðinni
orðið fyrir guðlegu inngripi sem fékk þig
til að sjá líf þitt í nýju ljósi og breytti stefnu
þess? Vinsamlega merktu x á kvarðann
hér fyrir neðan.
Sjáðu kvarðann fyrir þér sem línu sem
nær þvert yfir blaðið. Vinstra megin við
hana stendur orðið aldrei, hægra megin
stendur oft.
Hvar myndir þú setja þitt x á kvarðann?
Svari hver fyrir sig.
Í fullri alvöru væri ég mjög forvitinn
að sjá niðurstöðurnar. Eitt veit ég fyrir
víst. Einhver ykkar myndu merkja x
lengst vinstra megin, jafnvel framan við
kvarðann, yfir orðið aldrei og aðrir teygja
sig jafnlangt til hægri, oft.
SAGA AF MANNDRÁPI
Ég ætla að segja ykkur sögu og ég veit að
einhver ykkar fatta fljótt hvert ég er að fara.
Einu sinni fyrir langa löngu var ungur
maður sem í bræði varð manni að bana.
Þegar upp komst flúði hann heimaland
sitt, hafðist við á fjöllum og duldist meðal
hirðingja og í tímans rás varð hann einn af
þeim. Hann kvæntist og stofnaði fjölskyldu.
Eftir því sem frá leið minnkuðu áhyggjur hans
af afleiðingum gjörða sinna. Lífið var einfalt.
Dagarnir fóru í að snattast kringum rollurnar,
að finna þeim haga og vatnsból og passa
upp á að þær færu sér ekki að voða. Þannig
liðu dagarnir og þeir urðu að árum.
Hver var maðurinn?
Ef svar þitt er Móse þá er það rétt til getið.
Á þessum kafla ævinnar hittum við
hann á fjallinu Hóreb í Midíanslandi í
ritningarlestri dagsins.
Hirðingjarnir sem hann bjó á meðal
vissu í raun ekki hver hann var. Þar var
hann kallaður Egyptinn, sem var ekki
alls kostar rétt því Móse var raunar af
ætt innflytjenda í Egyptalandi. Hann var
Hebrei, eða Gyðingur, eins og okkur er
tamara að segja.
Egyptar höfðu þá löngu áður
undirokað hebresku innflytjendurna í
landi sínu, þjóðnýtt þá og gert að þrælum
sínum.
INNGRIP GUÐS
Það var miður dagur og sólin hátt á lofti, að
venju gætti Móse fjárins fyrir tengdapabba
sinn. Svo sem einn af þessum dæmigerðu
dögum þá sá hann allt í einu, sér til furðu
á víðavangi, runna í ljósum logum en sem
virtist þó ekki verða eldi að bráð og rödd úr