Bjarmi - 01.04.2021, Síða 29
bjarmi | apríl 2021 | 29
runnanum hrópaði: Móse, Móse! Og hann
svaraði: Hér er ég!
Margir hafa spurt sig hvers lags
fyrirbæri þessi runni var og hann stundum
útskýrður sem náttúrufyrirbæri eða
ofskynjanir en það eru hundleiðinlegar
pælingar. Þessi saga er ekki þess eðlis að
hana eigi að setja upp í einhvers konar
Excel skjal.
Þarna er lýst guðlegu inngripi sem
fékk Móse til að endurskoða líf sitt,
einhverju sem verður varla lýst öðruvísi en
þarna er gert.
Og vitið þið hvað?
Brennandi runnar ganga ljósum
logum og birtast okkur enn þá í ýmsum
myndum.
Sjálfur hef ég orðið fyrir inngripi Guðs
í líf mitt. Til dæmis sem ungur maður.
Þá sá ég skyndilega tilveruna í nýju ljósi,
fékk nýjan tilgang og ég tók nýja stefnu.
Ef ég reyni að útskýra hvað það var
nákvæmlega sem gerðist þá vefst mér
tunga um tönn en myndin af talandi eldi
úr logandi tré sem þó brennur ekki verður
þá ekki svo fjarstæðukennd.
Og röddin sem talaði við Móse úr
runnanum minnti hann á að jörðin sem
hann stæði á væri heilög og því skyldi
hann fara úr skónum.
AÐKALLANDI VERKEFNI
Svipað ákall stendur okkur nærri nú á
dögum þó í annarri mynd sé. Sú rödd verður
æ ágengari sem kallar á okkur viðvaranir um
að jörðin sem við höfum undir fótum okkar
sé heilög og viðkvæm sköpun þar sem
við getum ekki traðkað á með skítugum
skónum endalaust. Og hún minnir okkur á
að það er löngu kominn tími til tipla á tánum
því annars muni fyrirsjáanlega fara illa.
Það verkefni sem heimurinn stendur
andspænis, að vinda ofan af þeim vanda
sem við höfum komið okkur í og bakað
komandi kynslóðum er sannarlega
risavaxið, en það er víst raunhæft. Enn
þá.
Kannski ætti öll prédikunin mín að
fjalla um þetta brýna mál en hvað það
varðar skulum við taka með okkur úr
frásögunni af Móse að þótt verkefnin
virðist óleysanleg þá er allt hægt.
VERKEFNI MÓSE
Og hvert var verkefni Móse? Við getum
sagt með sanni að það hafi verið að
standa með lítilmagnanum, hinum kúguðu
ættmennum sínum í Egyptalandi og gera
það á einfaldan og skýran hátt; Hann átti
að biðja konung Egyptalands, Faraó, að
sleppa þeim lausum úr þrældóminum,
annars hlyti hann og þjóð hans verra af. Við
heyrðum að Móse þótti hann vera vægast
sagt óheppilegur til verksins, stirðmæltur
og stamandi, en rödd Guðs í eldinum
sannfærði hann að lokum.