Bjarmi - 01.04.2021, Qupperneq 36
| bjarmi | apríl 202136
Við þurfum að horfa
réttum augum á okkur
sem kirkju
VIÐTAL VIÐ GREG AIKINS UM VÆNTANLEGA BÓK
RAGNAR GUNNARSSON
Á næstu vikum er væntanleg bókin
Ný sjálfsmynd. Kristni á Íslandi á 21.
öld eftir Greg Aikins. Sumir lesendur
Bjarma kannast við hann, aðrir eflaust
ekki og spyrja sig: Hvað er útlendingur
að tjá sig um kirkjumál á Íslandi í heilli
bók? Bjarmi hafði því samband við
Greg til að fá að vita meira um hann,
tengsl hans við Ísland, af hverju hann
fór að skrifa bók og um hvað hún fjallar.
En fyrst er að vita aðeins meira um hver
þessi Greg er?
Ég gleðst fyrst og fremst yfir því að
vera barn Guðs. Guð leiddi mig sem tíu ára
dreng til trúar á Jesú Krist þegar ég var í
kristilegum sumarbúðum við Canandaigua
vatnið í New York í Bandaríkjunum. Það
er mér enn minnisstætt hvernig mér leið
þegar ég upplifði að Jesús hafði komið inn
í líf mitt og ég held að ég gleymi því aldrei.
Þarna á sama stað kallaði Guð mig líka
til þjónustu þegar ég var unglingur. Eftir
það gat ég ekki hugsað mér annað en að
vera prestur eða kristniboði. Ég undrast
enn þá að ég sem er svo ófullkominn skuli
vera kallaður til að þjóna Kristi.
Ég fór í biblíuháskóla í Fíladelfíu, PA,
í Bandaríkjunum þar sem ég lauk BS
prófi. Þar kynntumst við konan mín Betsy.
Betsy var kristniboðabarn sem ólst upp í
Evrópu og þegar ég hitti hana þá komst
ég í samband við samtök foreldra hennar,
Greater Europe Mission (GEM). Eftir að
við giftum okkur fórum við til Chicago en
þar lauk ég mastersnámi í guðfræði við
Trinity Evangelical Divinity School 1979.
Á þeim tíma lásum við hjónin grein um
Ísland sem kristniboðsakur í tímariti sem
GEM gáfu út. Við vissum ekki neitt um
land og þjóð en eitthvað togaði í okkur.
Næstu árin héldum við áfram að leita
Guðs um það hvort hann væri í raun
og veru að senda okkur til Íslands sem
kristniboða. Á meðan starfaði ég sem
aðstoðarprestur í heimakirkju okkar sem
var nálægt Fíladelfíu. Guð sleppti ekki
hendi af okkur og sannfærði okkur smátt
og smátt um að hann hefði valið Ísland
fyrir okkur. GEM og heimakirkjan okkar
samþykktu það. Eftir að hafa undirbúið
okkur í tvö ár, með blessun safnaðarins,
lentum við á Fróni sumarið 1985 með litlu
stelpunum okkar þremur.
HVERNIG VAR AÐ KOMA HINGAÐ
OG HVAÐ TÓK VIÐ?
Það fyrsta sem við gerðum var að læra
íslensku og aðlagast íslenskri menningu.
Við hjónin vorum námsmenn við Háskóla
Íslands og unnum með einkakennurum
í tvö ár. Okkur fannst mjög mikilvægt að
læra að tala og hugsa á íslensku til að vera
þátttakendur í því sem Guð var að gera
meðal fólks á Íslandi.
Síðan reyndum við ýmsar leiðir til
að komast í samband við fólk og taka