Bjarmi - 01.04.2021, Page 39
bjarmi | apríl 2021 | 39
NÝ SJÁLFSMYND -
HVER ÞARF Á HENNI AÐ
HALDA?
Ég trúi að ef andi Jesú Krists
býr í okkur fyrir trú á hann,
þá séum við öll saman hlutir
af „Kirkjunni“, limir á líkama
Krists, sama hvaða kirkjudeild
sem við tilheyrum. Vegna þess
að kirkjan er lifandi á það ekki
að koma okkur á óvart að
við þurfum af og til að fara
í sjálfsskoðun, sérstaklega
þegar við lifum á tímaskeiði
eins og póstmódernisma og
„eftir-kristindómi.“ Á þessum
tíma þegar ýmislegt er breytt
frá því sem áður var þurfum við
öll sem erum kristin að spyrja:
„Hver erum við sem kirkja?“
og horfa á sjálf okkar í gegnum
augu Jesú Krists sem er enn
þá að byggja sína kirkju.
HVAÐA SKILABOÐ
BÓKARINNAR TELUR ÞÚ
VERA MIKILVÆGUST?
Mér finnst mikilvægast að
öðlast þá sjálfsmynd að kirkjan
sé hreyfing og endurheimta
hlutverk okkar sem samfélag
vina og nemanda Jesú sem
hjálpast að við að finna og
fylgja Kristi í sínu daglegu
lífi. Eins að gera okkur grein
fyrir því að Ísland er orðið
kristniboðsakur frekar en að hér
sé kristin þjóð. Þetta þýðir að við verðum að
hugsa og haga okkur eins og kristniboðar
hugsa og haga sér. Í þriðja lagi vil ég að
kirkjuleiðtogar horfi öðruvísi á kirkjuforystu
en oft er gert. Í stað þess að horfa á okkur
sem framkvæmdastjóra eða embættis-
og kennimenn að við sjáum okkur sem
lærisveina og þjálfara annarra sem vilja
fylgja honum. Og að við byrjum að mæla
árangur starfsins í ljósi þeirra áhrifa sem
fagnaðarerindið hefur í lífi safnaðarbarna
og þjóðfélagsins frekar en messusókn eða
fjölda kirkjuathafna.
HVAÐ VONAST ÞÚ EFTIR AÐ SJÁ
GERAST ÞEGAR FÓLK LES BÓKINA?
Mín helsta von er sú að lesendur muni heyra
raust Jesú og gera það sem hann segir
þeim. Ég vona einnig að fleira venjulega
kristið fólk fari að hittast í tveggja- til þriggja
manna hópum eins og Vinahópum Jesú.
Svoleiðis hópar eru kjarni kirkjunnar að mínu
mati. Kristur sjálfur hefur lofað að vera mitt
á meðal þegar kristið fólk hittist svona (Matt
18.20). Ég vil sjá fleiri presta og forstöðufólk
mynda slíkan hóp í kringum sig og vera
öðrum til fyrirmyndar sem lærisveinar Jesú.
Ég er sannfærður um að ef fjöldi þess konar
hópar margfaldast á Íslandi að þá munum
við sjá kristilega hreyfingu sem er óstöðvandi
og sem mun vera íslensku samfélagi til heilla.
Við þurfum að sjá tækifærin sem liggja
í hverjum og einum okkar sem tilheyrum
Jesú Kristi. Kirkja Jesú er lifandi vera og
Jesús sjálfur segist ætla að byggja á þeirri
sannfæringu fylgjenda sinna að hann er
„Kristur, sonur hins lifanda Guðs“ (Matt
16.18). Kirkjan er nærvera Jesú meðal
fólks síns sem er kallað út til að vera andleg
fjölskylda á sendiför Guðs í þessum heimi.
Kápumynd bókarinnar gerði Christa, dóttir Betsyar og Gregs.