Bjarmi - 01.04.2021, Page 45
bjarmi | apríl 2021 | 45
Uppáhalds
biblíuversin mín:
Aldrei ein við
störf
GUÐNÝ BJARNADÓTTIR
Og ég segi yður: Biðjið og yður mun
gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á
og fyrir yður mun upp lokið verða. Því að
hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem
leitar og fyrir þeim sem á knýr mun upp
lokið verða. Lúkas 11:9-10
Ég er í þeirri forréttindastöðu að hafa
átt kost á að læra að verða ljósmóðir og
unnið við það stóran hluta starfsævinnar.
Margur hefur trúað mér fyrir því að hafa
langað að feta þessa braut, en ekki átt
þess kost, en ég þakka svo sannarlega
Guði fyrir að hafa leitt mig þennan veg.
Í slíku starfi er ómetanlegt að finna að
maður er ekki einn. Oft hef ég skynjað í
starfinu að Guð er með mér og hann hefur
gefið mér ýmis tákn sem hafa reynst vel.
„Og þegar þú sér þessi tákn koma
fram, þá neyt þess færis, sem þér býðst,
því að Guð er með þér“ Fyrri Samúelsbók
10.7.
Það er erfitt að lýsa þessum táknum,
en í rannsóknum sem hafa verið gerðar
á yfirsetu ljósmæðra kemur fram að
„þær finna sig ekki einar“. Þær verða
varar við einhvers konar hugboð eða
fyrirsjáanleika. Ég hef margoft orðið vör
við þessa fyrirboða eða tákn. Maðurinn
minn segir að oft hafi ég sagt þegar
ég var að fara í útkall til fæðandi konu,
„þetta verður stutt útkall eða nú verður
óvíst hvenær ég kem til baka“. Hvað er
það sem gerist í hugarheimi ljósmóður
í yfirsetu? Það er ekki einfalt að segja,
en í senn er takmarkið að trufla ekki
framvindu náttúrunnar í fæðingarferlinu
(vera hljóð, en samt á staðnum) svo og
að lesa í aðstæður frá mínútu til mínútu og
vera með viðbragðahormónin tilbúin ef á
þarf að halda. (tilbúin til bjargar). Í mínum
ljósmóðuryfirsetum hafa átt sér stað mörg
einkasamtöl við Guð. Bæði í þakklæti
og beiðni um styrk. Biblíuversið sem
ég byrjaði á hefur verið mitt leiðarstef í
starfinu. Að vera alltaf vakandi fyrir hverjum
og einum, efla mig í faglegri þekkingu og
bænin/samtalið við Guð minn hefur gefið
styrk og áræðni til að takast á við starfið.
Samvinna með verðandi foreldrum og
fjölskyldum þeirra er gefandi og nærir
bæði faglega og andlega vitund þess sem
slíkt starf vinnur. Það takast á kraftar lífs
og dauða og með undursamlegum hætti
er það er lífið sem vinnur í langflestum
tilfellum. Vissulega eru skilin stundum
tæp og því miður er það dauðinn sem
stundum hefur vinninginn.
Annað biblíuvers er líka í uppáhaldi en
það er „Hvað vilt þú að ég geri fyrir þig?“
Markús 10:51.
Þegar barn fæðist og grætur fyrsta
sinni er það bæn. Barnsgráturinn gefur
þeim sem annast það merkinguna: Hvað
viltu að ég geri fyrir þig? og það er þeirra
að svara. Gráturinn er bæn um að einhver
taki það að sér þegar það breiðir út faðminn
og bíður þess að einhver taki það sér í
fang og annist það. Þessi stund er jafnan
hlaðin heilagri orku sem er ólýsanleg, en
saman blandast léttir frá þjáningu sem er
liðin, en einnig gleði vegna samfunda við
þann sem beðið hefur verið eftir. Verkefni
foreldranna hefst þegar eftir fæðingu, en
það er að túlka hvað er hægt að gera
fyrir barnið. Það getur verulega reynt á
og krefst mikilla samskipta. Í samskiptum
barnsins við foreldrana og aðra
uppalendur verður það að einstaklingi.
Án samskipta verður einstaklingurinn
tómið eitt. Sama er að segja um Guð,
hann er samskiptahugtak sem verður að
rækta. Með augum trúarinnar getum við
séð hlutina á algerlega nýjan hátt. Til að
eiga gott samband þarf að rækta það.
Eiga samtal, rétt eins og samtal foreldra
við barnið sitt kennir því tungumálið.
Trúartungumálið verður ekki til af engu.
Það verður til með því að miðla gæsku
Guðs og leggja rækt við það. Að kenna
barni að eiga hljóða stund, þekkja fallegan
texta og ljóð. Þekkja frið og kærleika og
tilfinninguna að vera Guðs barn.
Þar sem ég hef starfað sem ljósmóðir
í yfir tuttugu ár er þessi bæn barnsins
mér hugleikin. Hversu falleg og heilög
sú stund er. Fæðingarstofuguðfræðin er
einföld, hún segir allt sem er manninum
heilagt. Lotning fyrir lífinu hefur opinberast
í nýju mannverunni, þakklæti, traust og
gleði umvefur andartakið með undirleik af
bæn barnsins.
Að gefa Guði dýrðina, lofa hann og
ákalla tengir okkur nær skapara okkar
sem gefur okkur lífið.
Með góðri kveðju og blessun
Guðný Bjarnadóttir
Borgarfirði.