Bjarmi - 01.04.2021, Qupperneq 47
bjarmi | apríl 2021 | 47
En í þeim hebreska heimi þar sem sagan
gerðist gengur slík útskýring ekki upp. Í
menningu Hebrea mega aðeins karlar
skilja við konur. Jú, hún var marggift,
en þeir fóru allir frá henni. Hún var ekki
skækja. Setjum okkur í hennar fótspor.
Hvernig ætli henni hafi liðið eftir að fimm
menn yfirgáfu hana?
Skömm. Eftirsjá. Ótti. Erfitt með að
treysta körlum. Erfitt með að treysta Guði.
Jesús kom til hennar í allri þessari
tilfinningaflækju, leit í augu hennar
og sýndi henni kærleika og virðingu.
Ímyndaðu þér breytinguna. Lífið breytt.
Hjartað breytt. Umbreyting. Á þessum
tíma og í ráðandi menningu sýndu
karlmenn ekki konu kærleika og virðingu
á þennan hátt, en samt talar Jesús beint
inn í dýpstu þrár hjarta hennar. Jesús
býður henni vatn sem muni slökkva
dýpsta þorsta hennar.
Jesús svaraði: „Hvern sem drekkur
af þessu vatni mun aftur þyrsta en hvern
sem drekkur af vatninu er ég gef honum
mun aldrei þyrsta að eilífu. Því vatnið,
sem ég gef honum, verður í honum að
lind sem streymir fram til eilífs lífs.“ Þá
segir konan við hann: „Drottinn, gef mér
þetta vatn svo að mig þyrsti ekki og ég
þurfi ekki að fara hingað að ausa“ (Jóh
4.13-15).
Hún vissi að hún þráði svölun á þorsta
sínum. Hún þekkti dýpstu þarfir hjartans
sem ekki voru uppfylltar. Þessi kona hafði
verið misnotuð mann fram af manni og
alltaf þyrsti hana eftir viðurkenningu og
kærleika. Þegar aðrir litu á samversku
konuna sáu þeir konu með fortíð mótaða
af siðleysi. Þegar Jesú leit á hana sá hann
konu með djúpan andlegan þorsta. Hann
bauð henni lifandi vatn til þess að slökkva
þorstann og þessi fundur með Jesú
umbreytti lífi hennar.
Þessi frásaga bendir á mikilvægan
sannleika. Í augum Jesú erum við ekki
metin út frá fortíð okkar. Við erum ekki
skilgreind á grundvelli þess sem gert var
á okkar hlut eða vegna mistaka sem við
gerðum. Við erum ekki metin samkvæmt
skömm eða eftirsjá. Við erum metin út
frá auðkenni okkar í Jesú Kristi. Við erum
heilög, ný sköpun hans.
Við erum laus undan skömm. Trúum við
því í raun og veru? Ímyndum okkur hvernig
líf okkar væri ef við í sannleika tryðum því
að Guð elskar okkur. Ég veit að þannig leið
konunni við brunninn. Eftir að Jesús gekk í
veg fyrir mig og talaði við mig, fór ég að sjá
það sem hann sá. Ég skrifaði niður hjá mér
seinna um daginn og hélt áfram að skrifa.
En Guð, hann sá eitthvað annað.
Hann hafði ekki gleymt dóttur sinni.
Barni sínu.
Prinsessunni sinni.
Í augum Guðs var hún fallegri en nokkru
sinni.
Hún leit í spegilinn.
Guð leit úr speglinum.
Guð hvíslaði í eyra hennar að hann væri
þarna.
Hann var þarna allan tímann.
Hann hélt í hönd hennar.
Hann huggaði hjarta hennar.
Hann grét.
Hann staldraði við.
Hann var reiður. Öskuillur.
Hjarta hans brast þegar hann horfði á
þegar litla stúlkan hans var særð
af synd heimsins.
Dýrmæta dóttir Guðs, ekki missa vonina!
Guð var með þér og verður alltaf með þér!
Þegar samverska konan fékk að reyna
umbreytandi kærleika Jesú fann hún frelsi
og lausn frá skömm. Hún hljóp af stað og
sagði öllum í þorpinu frá því!
Nú skildi konan eftir skjólu sína, fór inn
í borgina og sagði við menn: „Komið og
sjáið mann er sagði mér allt sem ég hef
gert. Skyldi hann vera Kristur?“ Þeir fóru
úr borginni og komu til hans (Jóh 4.28-
20).
Eins og Jesús leysti konuna frá
leyndarmálum hennar þá var hún leyst frá
skömm sinni. Hann endurreisti hana. Áður
en hún hitti Jesú lifði hún í skömm og faldi sig
fyrir öðrum. Þess vegna kaus hún heitasta
tíma dagsins þegar engir voru á ferli. Eftir að
Jesús leysti hana undan skömm hljóp hún
til þess að segja öllum frá honum. Óvinurinn
missti tak sitt á henni. Sama á við um okkur
þegar við mætum Jesú.
Bæn mín er sú að þú rekist á hann og
svo að þú upplifir kærleika hans og reynir
einnig að vera laus frá skömm þinni.
(Þýtt og birt með leyfi Authentic
Intimacy. Greinin á frummálinu er á vef-
síðunni https://www.authenticintimacy.
com/resources/23503/ exper ience-
freedom -from-shame)