Strandapósturinn - 01.06.1996, Page 24
þaðan heim til Hólmavíkur. Vinnslan í landi leið því ekki fyrir
hráefnisskort, og eftir að sala tregðaðist voru um tíma til um 1.000
tonn af unninni og óunninni frystri rækju í frystigeymslum
Hólmadrangs hf.
Afli Hólmadrangs ST-70 var með minna móti á árinu. I árs-
byrjun var ákveðið að senda togarinn til rækjuveiða, og eftir eina
veiðiferð á Islandsmiðum var haldið á Flæmingjagrunn eða
Flæmska hattinn við Kanada. Þar var togarinn við veiðar í 3—4
mánuði og gekk þokkalega. Síðsumars var svo haldið til veiða í
Smugunni í Barentshafi eins og undanfarin ár, en aflinn þar var
afar lítill að þessu sinni. Munu rnargir skipverjar hafa verið orðnir
þreyttir á löngum útiverum á fjarlægum nriðum þegar árið var á
enda.
Rekstur Hólnradrangs hf. var fremur þungur á árinu, en fyrir-
tækið rekur nú frystihúsin á Hólmavík og Drangsnesi auk Hólma-
drangs ST-70 og Víkurness ST-10. Erfið birgðastaða gerði róður-
inn þyngri en ella. Engu að síður var ráðist í það stórvirki um
haustið að gjörbreyta rækjuvinnslu frystihússins á Hólmavík.
Frystiklefi hússins var rifinn niður og annar byggður í hans stað,
vinnslulínur voru endurbyggðar og endurskipulagðar frá
grunni, keyptar nýjar vélar o.s.frv. Heildarkostnaður við þessar
framkvæmdir mun hafa verið um 100 milljónir króna, en nauð-
synlegt var að ráðast í breytingarnar til að færa vinnsluna í það
horf sem nú eru gerðar kröfur um. Breytingunum er ekki lokið,
en þegar allt sem þeim fylgir er komið í gagnið munu afköst
verksmiðjunnar verða orðin nær tvöfalt meiri en áður. Jafnframt
mun vinnslan uppfylla ströngustu gæðakröfur sem gerðar eru á
þessu sviði.
Hólmadrangur hf. er nú almenningshlutafélag, og eru hluta-
bréf í fyrirtækinu skráð á Opna tilboðsmarkaðnum. Einnig er
stefnt að skráningu bréfanna á Verðbréfaþingi.
Grásleppuvertíðin um vorið var nrjög rýr, sums staðar jafnvel
sú lélegasta í manna minnum. Verð fyrir grásleppuhrogn var
hins vegar geysihátt, eða um 90 þús. kr. fyrir tunnuna. Arið áður
var verðið um 68 þúsund og þótti þá mjög gott.
Um haustið var leyfð veiði á 2.100 tonnum af innfjarðarrækju á
22