Strandapósturinn - 01.06.1996, Page 98
Jónssonar kaupmanns á Flateyri, og Lýður Einarsson frá Sand-
nesi við Steingrímsfjörð.
Árið 1899 eða 1900 kaupir Thorarensen dekkskip, sem hét
Betsímaría, frá Isafirði. Var hún keypt um sumarið en rak upp
urn haustið það sama ár. Átti hún að fara með vörur — saltfisk,
trosíisk og harðfisk — og var allt komið um borð í hana er hún
dreif upp og brotnaði. Var hún um 30 tonn.
Þess skal getið að dönskum vöruflutningaskipum var alltaf
haldið út á þorskfiskirí að sumrinu þegar búið var að aflesta þau,
þangað til seint í ágúst að byrjað var að hlaða þau með innlendri
vöru til útflutnings. Var veiðitíminn í júní, júlí og ágúst. Fiski-
menn á þeim voru aðallega íslenskir.
Ennfremur átti Jakob Thorarensen í 8-10 ár danskt vöruflutn-
ingaskip, skonnortu sem hét Axel og sigldi upp til Reykjarfjarðar
á hverju vori í maí með útlenda vöru og út til Kaupmannahafnar
á hverju hausti með íslenskar vörur. Skip þetta átti hann til hálfs á
móti Salonron Davidsen, umboðsmanni sínum í Kaupmanna-
höfn.
Haustið 1887 vildi það til þegar búið var að ílytja um borð í
skipið saltfisk og lýsi og lá á höfninni, að hann gjörði norðaustan
stórviðri, skipið dreif til lands og brotnaði botninn undan því svo
það sökk rétt við land. Lýsið náðist óskemmt en saltfiskurinn
skemmdist meira og minna og var eitthvað af honum boðið upp.
Skipsflakið var einnig boðið upp með rá og reiða þar sem það lá í
sjónum. Keypti Jakob J. Thorarensen það og lét rífa það sem
náðist.
Árið 1903 kaupir hann enn norskan dekkbát að nafni Pröven af
norskum síldveiðimönnum, sem sigldu honum frá Siglufirði til
Reykjarfjarðar. Árið 1905 seldi hann hana aftur Finnboga Guð-
mundssyni á Finnbogastöðum.
96