Morgunblaðið - 21.08.2021, Page 18
18 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2021
GUM Sonic batterístannburstarnir fjarlægja allt að
50% meira af óhreinindum en venjulegir tannburstar.
Nýttu auka kraftinn af titringnum fyrir dýpri hreinsun.
Sölustaðir: Krónan, Hagkaup, apótek, Fjarðarkaup og Heimkaup.is
Jón H. Sigurmundsson
Þorlákshöfn
Í ár eru 20 ár síðan Gunnar Jón
Guðmundsson lést af slysförum, þá
aðeins 16 ára gamall. Árlega er
haldið minningarmót í golfi á golf-
vellinum í Þorlákshöfn og rennur
ágóði mótsins til að styrkja
íþrótta- og æskulýðsstarf í sveitar-
félaginu Ölfusi ásamt forvarnar-
starfi í leik- og grunnskólum á
svæðinu.
Þann 15. ágúst sl. fór mótið fram
og við það tækifæri afhenti Magn-
ús Guðmundsson, bróðir Gunnars
Jóns, Körfuknattleiksdeild Þórs
eina og hálfa milljón króna í styrk
fyrir hönd menningarsjóðsins.
Magnús sagði þegar hann af-
henti styrkinn að hann þekkti vel
til körfuboltans í Þorlákshöfn, þar
væri unnið frábært starf sem sýndi
sig vel í Íslandsmeistaratitli í
Dominosdeildinni og fjölda lands-
liðsmanna í hópi bæði unglinga og
fullorðinna.
Mikil aðsókn
Að þessu sinni tóku 72 kylfingar
þátt í mótinu þar sem leikið var
eftir Texas Scramble-fyrirkomulagi
og ræst var út á öllum teigum á
sama tíma. Mikil aðsókn er í mótið
hverju sinnu og færri komast að
en vilja, enda vinningar veglegir.
Sigurvegarar á golfmótinu voru
Elís Rúnar Elísson og Björn Andri
Bergsson á 61 höggi nettó. Egill
Magnússon og Eyþór Már Magn-
ússon léku á 62 höggum nettó og
Hilmar Guðlaugsson og Gunnar
Marel Einarsson léku á 63 höggum
nettó.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Styrkveiting Magnús Guðmundsson afhenti styrkinn. Við honum tóku Tóm-
as Valur Þrastarson unglingalandsliðsmaður, Hildur Björk Gunnsteins-
dóttir unglingalandsliðskona og Styrmir Snær Þrastarson landsliðsmaður.
Hjá þeim standa Jóhanna Hjartardóttir, formaður körfuknattleiksdeildar
Þórs, og Guðmundur Karl Baldursson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs
Þorlákshafnar og faðir Gunnars Jóns sem mótið er til minningar um.
Styrktu körfu-
boltadeild Þórs
- Mikil aðsókn í minningarmót í golfi
„Það styrkir óneitanlega stöðuna
fyrir okkur á mörkuðum annarra
landa að segja frá því hversu vel
Ólafsson hefur verið tekið á heima-
vellinum,“ segir Arnar Jón Agn-
arsson, einn af stofnendum Eyland
Spirits sem stendur á bak við Ólafs-
son-ginið.
Þegar sölutölur Vínbúðanna voru
gerðar upp fyrir júlí kom í ljós að ís-
lenska ginið Ólafsson var það sölu-
hæsta í mánuðinum og tók þar með
toppsætið af Beefeater. Þetta þykja
nokkur tíðindi því rótgrónir risar frá
Englandi, heimalandi ginsins, hafa
einokað efsta sætið yfir mest selda
ginið allt frá því fyrsti gin og tón-
ikinn var blandaður hér á landi.
Ólafsson-gin kom á markað í mars
2020 og náði á skömmum tíma að
heilla bragðlauka íslenskra gin-
unnenda. Heimsfaraldurinn tafði
fyrirhugaða landvinninga en Arnar
Jón segir að eftir á að hyggja hafi
það verið lán í óláni. Ólafsson hefur
þrátt fyrir það vakið athygli í stórum
alþjóðlegum bragðkeppnum.
„Við höfum fengið gullverðlaun í
fimm eða sex keppnum og platínu-
verðlaun í einni. Hápunkturinn kom
í San Francisco Spirits Competition
núna í vor þar sem Ólafsson fékk
gullverðlaun fyrir bæði bragð og
umbúðir. Lengra verður ekki kom-
ist. Þetta var eins og að fá Óskars-
verðlaunin í bíóbransanum.“
Útflutningur hófst til Bandaríkj-
anna í sumar og segir Arnar að í
september verði Ólafsson-gin mætt í
sjö ríki af 50. „Þetta hefur verið ansi
ævintýralegt. Fyrir ári var ég eini
starfsmaður Eyland Spirits í fullu
starfi. Núna erum við orðin fimm og
sjáum fram á að þurfa að bæta við
okkur fólki mjög fljótlega.“
hdm@mbl.is
Íslenskt gin það vin-
sælasta í fyrsta sinn
- Ólafsson-gin sölu-
hæst í ríkinu - Selt í
sjö ríkjum vestanhafs
Sáttur Arnar Jón Agnarsson gleðst
yfir vinsældum Ólafsson-ginsins.
Nýverið tóku heimamenn og gestir á Flateyri þátt í nýrri
listgöngu sem bar yfirskriftina Flatbirds, með Jean Larson,
bandarískum listmálara, sem býr á Flateyri.
Í júlí og ágúst málaði Jean tólf málverk og vegglistaverk á
húsveggi bygginga á Flateyri sem gjöf til íbúa þorpsins og
hafa listaverkin vakið verðskuldaða athygli, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu.
Verkefninu lauk um síðustu helgi með gönguferð með
listamanninum og fuglafræðingnum Sigurlaugu Sigurðar-
dóttur frá Náttúrustofu Vestfjarða.
Á hátíðargöngunni, sem dró að sér yfir 70 manns, áttu
gestir þess kost að heyra frásagnir Jean af listrænni nálgun
hennar að verkefninu auk þess að njóta áhugaverðrar og
skemmtilegrar fræðslu um þá fugla sem prýða húsveggi
bygginga á Flateyri.
Göngunni lauk svo á Gunnukaffi á Flateyri þar sem gestir
nutu kaffiveitinga. Að því loknu fór fram fjörlegt listaverka-
uppboð þar sem gestum gafst kostur á að bjóða í uppsetn-
ingu 13. vegglistaverksins og safna um leið fjármunum fyrir
gott málefni.
Hæsta boð uppboðsins átti Peter Weiss, forstöðumaður
Háskólaseturs Vestfjarða á Ísafirði, sem hefur ákveðið að
vegglistaverkið muni prýða húsvegg á byggingu Grunn-
skóla Önundarfjarðar á Flateyri. Allur ágóði af uppboðinu
mun renna til Fuglaverndar, Fuglaverndarfélags Íslands.
Jean Larson er þekkt listakona frá Michigan í Bandaríkj-
unum. Hún hefur í samvinnu við Juraj Hubinák, annan íbúa
á Flateyri og verkefnisstjóra Lýðskólans á Flateyri, unnið
að verkefninu og tryggt nauðsynlegt fjármagn til þess.
Verkfræði- og þekkingarfyrirtækið EFLA veitti fjár-
magn til verkefnisins en listakonan gaf vinnu sína að gjöf til
Flateyrar, staðar sem er henni hjartfólginn, segir enn-
fremur í tilkynningunni.
Ljósmynd/Eyjólfur Karl Eyjólfsson
Listganga Flateyringar og ferðamenn gengu um bæinn og fengu fróðleik um listaverk Jean Larson.
Flateyringar fengu góða gjöf
- Listganga með bandaríska listmálaranum Jean Larsen
Listmálari Jean Larson vinnur hér að einu vegg-
listaverka sinna sem hún gaf Flateyringum.
Ljósmynd/Jay Simpson