Morgunblaðið - 21.08.2021, Qupperneq 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2021
70 ÁRA Pálmi fædd-
ist á Akureyri og ólst
þar upp. Hann varð
stúdent frá MA 1971 og
lauk embættisprófi í
guðfræði frá Háskóla
Íslands 1977. Með fram
náminu vann Pálmi
sem lögreglumaður á
Akureyri og í Rann-
sóknarlögreglunni í
Reykjavík auk ýmissa
annarra starfa. Hann
varð fyrst sóknar-
prestur í Melstaðarprestakalli í Húnavatnsprófastsdæmi 1977 og var þar í
fjögur ár, en frá 1981 var hann í Glerárprestakalli á Akureyri og hefur síð-
an verið sóknarprestur í Bústaðakirkju frá 1989.
Pálmi hefur verið virkur í félagsstörfum, bæði í æskulýðsstarfi og í
íþróttastarfi, enda hefur hann alltaf verið mikill íþróttamaður sjálfur. Hann
var í mörg ár í dómaranefnd, landsliðsnefnd og stjórn HSÍ og í héraðs-
nefnd Reykjavíkurprófastsdæmis vestra frá 1991. „Það hefur alltaf verið
mikið að gera hjá mér, en núna vil ég sinna fjölskyldunni og áhugamálum
sem eru mörg.“ Hann segir að þegar dóttursonur hans og nafni, Pálmi
Freyr, átti að fermast hafi hann viljað fermast á pálmasunnudag og láta afa
Pálma ferma sig, en þá voru Covid-takmarkanir á öllu og allar hópsam-
komur bannaðar. „Nafni spurði mig þá: „Getum við þá ekki farið bara tveir
saman í kirkjuna og þú haft athöfn fyrir mig, afi“, og við fórum þangað
saman. Það er góð tilfinning að finna að trúaruppeldið sé að skila sér til
barnabarnanna. Fjölskyldan hefur alltaf fylgt mér í starfinu og það er mikil
blessun.“
FJÖLSKYLDA Eiginkona Pálma er Unnur Ólafsdóttir, f. 9. júní 1954,
kennari og skrifstofumaður. Þau eiga dótturina Hönnu Maríu, f. 25.9. 1975,
viðskiptafræðing sem er gift Davíð Frey Oddssyni, cand. theol og MBA, f.
26.11. 1974. Börn þeirra eru Unnur María, f. 2003, Pálmi Freyr, f. 2006, og
Helgi Freyr, f. 2012. Foreldrar Pálma eru hjónin Matthías Einarsson, f.
10.6. 1926, d. 27. febrúar 2019, fv. lögregluvarðstjóri á Akureyri, og Jó-
hanna María Pálmadóttir, f. 28.8. 1927, fv. fulltrúi.
Pálmi Matthíasson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Gættu þess að gefa ekki neitt það í
skyn sem þú getur ekki eða vilt ekki standa
við. Gaumgæfðu líf þitt og kannaðu hvort
þú vilt breyta til.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það er allt í sómanum hjá þér um
þessar mundir í vinnunni svo þú getur leyft
þér að slaka svolítið á. En skelltu skollaeyr-
um við slúðrinu sem vinnufélagar þínir eru
að henda á milli sín.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Gættu þess að halda þig við
sannleikann í dag. Settu þér skynsamleg
mörk, því annars er hætt við að allt mis-
heppnist.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Ekkert virðist þér ofviða og þú hef-
ur jákvæð áhrif á umhverfi þitt með því að
sýna vinsemd og umhyggju.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Vertu ekki vonsvikinn þótt þér hafi
mistekist eitthvað. Leyfðu fleirum að láta
ljós sitt skína og sýndu öðrum þá þolin-
mæði sem þú vilt njóta.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Lífið verður meiri dans á rósum á
næstunni en verið hefur. Ekki gefast upp
núna, haltu ótrauður áfram.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú hefur jákvæð áhrif á samstarfs-
menn þína. Allir vilja njóta samvista við þig,
virðist vera.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Hvort sem þú vilt hreyfa þig
meira eða bæta mataræðið áttu eftir að
vera sáttur við að gera svo. Haltu samt
lykilleyndarmálunum fyrir þig.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú þarft áreiðanlega að kyngja
ýmsu til þess að halda friðinn á vinnu-
staðnum. Gefðu sannleikanum tíma til að
koma í ljós.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Án nokkurs vafa ertu miðja allr-
ar athygli í félagslífinu. Spurðu samt sjálfan
þig að því hvort þú sért að gera það sem þú
viljir vera að gera í lífinu.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Mundu að ekki verður tekið
mark á orðum þínum, nema þú eigir inn-
eign fyrir slíku trausti.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þetta er góður dagur til að ræða
vandamál sem hafa komið upp í vinnunni
og mundu að stundum verða aðrir að fá að
ráða för.
í tvö ár og var meðal stofnfélaga
Rótarýklúbbs Reykjavíkur – Mið-
borgar 1994 og forseti hans 2007-08.
„Eftir að ég hætti að vinna fór ég
á fullt að starfa hjá Rauða krossin-
um og sinnti í 15 ár sjálfboðastörf-
um hjá kvennadeild Reykjavík-
urdeildar Rauða kross Íslands á
árunum 2005-20.“ Hún var í stjórn
kvennadeildar í tíu ár og formaður
2011-17, í stjórn Hollvinasamtaka
í Verslunarskólanum var ég kosin í
stjórn nemendafélagsins. Stuttu eft-
ir að ég kom heim úr námi frá Bret-
landi áttaði ég mig á því að það
þyrfti að bæta eitthvað stöðu
kvenna í samfélaginu. Þá gekk ég í
Kvenréttindafélag Íslands og var
þar í stjórn frá 1981-85 og var einnig
í ráðgjafarnefnd jafnréttisráðs, sem
voru mjög gefandi störf.“ Auk þess
sat Oddrún í stjórn Hallveigarstaða
O
ddrún Kristjánsdóttir
fæddist í Reykjavík 21.
ágúst 1951. Hún var
skírð í höfuðið á Oddi
afa sínum og Guðrúnu
ömmu. Fyrstu árin bjó hún með for-
eldrum sínum í Vesturbænum í
Reykjavík en frá 1960 á Seltjarn-
arnesinu. Hún lauk stúdentsprófi
frá hagfræðideild Verslunarskóla
Íslands 1972, og kenndi síðan í
skólanum í hálft ár. Árið 1976 lauk
hún BSc.-prófi (hons.) í umhverfis-
fræðum frá University of Salford í
Bretlandi. „Á þessum tíma var nám-
ið í Verslunarskólanum sex ár og ég
útskrifaðist úr hagfræðideild skól-
ans. Það var eiginlega gert ráð fyrir
að við færum öll í viðskiptafræði, en
ég ákvað að taka U-beygju og fór til
Bretlands í umhverfisfræði, þrátt
fyrir að bestu vinir mínir í dag séu
úr Versló. En það var mjög gott fyr-
ir mig að fara að heiman og þrosk-
andi.“
Vorið og sumarið 1973 starfaði
Oddrún sem flugfreyja á DC-8-
þotum Loftleiða. Eftir háskólanámið
í í Bretlandi vann hún fyrst sem
fulltrúi hjá Flugmálastjórn Íslands,
1976-78, og síðan í samgönguráðu-
neytinu 1978-82. „Það var mjög
skemmtilegur tími hjá samgöngu-
ráðuneytinu. Það voru færri starfs-
menn í ráðuneytunum og margir
stórir málaflokkar svo maður fékk
að kynnast mjög mörgu.“ Eftir fjög-
ur ár í ráðuneytinu ákvað Oddrún í
félagi við þrjá skólafélaga úr Versl-
unarskólanum og með eiginmann-
inum að stofna fyrirtækið Liðsauka
árið 1982. „Þetta var fyrsta afleys-
ingaþjónustan hér á landi og það
dæmdist á mig að veita því fyrirtæki
forstöðu og það gerði ég næstu tólf
árin.“ Árin 1994-99 var hún ráðin
framkvæmdastjóri Vinnumiðlunar
Reykjavíkurborgar, síðar höfuð-
borgarsvæðisins. Hún starfaði 1999-
2000 í ráðhúsinu sem verkefnisstjóri
atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar
og frá árinu 1985 hefur Oddrún
einnig verið framkvæmdastjóri fjöl-
skyldufyrirtækisins Magnús Þor-
geirsson ehf.
„Ég hef alltaf verið afskaplega
mikil félagsmálamanneskja og strax
líknardeilda í eitt ár, í stjórn
Reykjavíkurdeildar Rauða kross Ís-
lands 2011-20 og í stjórn Rauða
kross Íslands 2014-20.
Oddrún segist vera svo lánsöm að
eiga marga góða vini og sem dæmi
er hún í tveimur öflugum og
skemmtilegum vinahópum, sem
hittast reglulega. „Göngugarparnir“
eru níu skólasystur úr Versló og
„Liðsurnar“ eru átta fyrrverandi
starfskonur í Liðsauka, sem halda
enn góðu sambandi og hittast reglu-
lega. „Við Göngugarparnir röltum
nú aðallega um innanbæjar og köll-
um okkur garpa meira í gríni en al-
vöru,“ segir hún hlæjandi. „En
göngurnar eru hollar og ekki síður
félagsskapurinn.“
Árið 1986 byggðu þau Leifur
eiginmaður hennar sumarhús á
bökkum Norðurár í Borgarfirði.
Fjölskyldan hefur síðan átt margar
góðar stundir þar. Um árabil stund-
uðu þau laxveiði í Norðurá, og einn-
ig í ýmsum öðrum ám á Vestur- og
Suðurlandi.
„Þetta er dásamlegt svæði og við
erum þarna allt árið um kring, því
húsið er heilsárshús og stutt að fara
úr bænum.“
Eftir starfslok hennar og Leifs
árið 2000 ákváðu þau að heimsækja
ýmsa staði jarðkringlunnar. „Okkur
langaði að skoða heiminn og vorum
bæði orðin frjáls eftir að hætta að
Oddrún Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri – 70 ára
Sumbústaðurinn 2021 Í páskafríi 2021 í bústaðnum í Borgarfirði. Frá
vinstri: Fanney Ída, Darri, Kristján, Magnús, Júlíus Hrafn og Oddrún.
Mikil félagsmálakona
Veiðin Oddrún með 15 punda lax, sem hún veiddi á litla Sil-
ver Blue flugu í Stekkjarfljótinu í Norðurá í júlí 1994.
Kína Leifur og Oddrún prófa kínverskt snáka-
brennivín í siglingu niður ána Li í Kína í apríl 2006.
Til hamingju með daginn
- meira fyrir áskrifendur
Lestumeira
með vikupassa!
Fyrir aðeins 1.990 kr. færð þú netaðgang að
öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga.
- Fréttir
- Ritstjórnargreinar
- Menning
- Íþróttir
- Daglegt líf
- Viðskipti
- Fastir þættir
- Aðsendar greinar
- Aukablöð
- Viðtöl
- Minningargreinar
- Umræðan
Vikupassi er auðveldari
leið til að lesaMorgunblaðið
á netinu.
Fáðu þér vikupassa af
netútgáfu Morgunblaðsins.