Morgunblaðið - 21.08.2021, Page 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2021
»Fyrstu tónleikarnir
af fernum sem bera
yfirskriftina Nýklassík
og Sinfó voru haldnir í
Eldborg í fyrrakvöld.
Þar mætast Sinfóníu-
hljómsveit Íslands og
margir af vinsælustu
tónlistarmönnum lands-
ins í poppi og rappi,
þeirra á meðal GDRN.
Popp- og rappstjörnur komu fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg í fyrrakvöld
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nýklassík GDRN á sviði Eldborgar með Sinfóníuhljómsveit Íslands og stjórnanda, Daníel Bjarnasyni.
Kátar Anna Kristín Óskarsdóttir og Elísabet Alma Svendsen. Spennt Maríanna Káradóttir og Kári Guðmundsson skömmu fyrir tónleika.
Í Hörpu Sverrir Hreiðarsson og Margrét Ragnarsdóttir.
Tilvaldar hallir er heiti sýningar
sem Þorvaldur Jónsson myndlistar-
maður opnar í Listamönnum gall-
eríi á Skúlagötu 32 kl. 16 í dag,
laugardag. Frásagnarkennd mál-
verk Þorvaldar hafa á undan-
förnum árum vakið talsverða at-
hygli, verk þar sem oft má sjá menn
sem dýr úti í náttúrunni, verk sem
eru hlaðin smáatriðum og vísa stíl-
lega í myndheima bernskra lista-
manna. En í þessum nýju verkum
eru hvorki menn né lifandi dýr á
ferli heldur sýna þau öll misfræg
heimili og aðsetur listamanna, fyrr
og nú, og öll nema eitt á Íslandi.
Gljúfrasteinn er á einu málverkinu,
Skriðuklaustur á öðru, þá hefur
Þorvaldur sem dæmi málað Hnit-
björg Einars Jónssonar, heimili
Bjarkar Guðmundsdóttur, turnum
prýtt heimili Sverris Stormskers á
Vatnsleysuströnd, kofa Kjarvals á
Héraði og heimili Hrafns Gunn-
laugssonar á Laugarnesi.
Þorvaldur segir blaðamanni að
þessi sérstaka röð verka hafi hafist
með myndinni sem hann málaði af
einstakri byggingu sem franskur
alþýðulistamaður, Ferdinand Che-
val, reisti sér.
„Ég hef svo aðallega valið hús
sem mér finnst áhugaverð og þau
eru næstum því eins og myndir af
listamanninum. Maður þekkir í
sumum tilvikum næstum því húsin
betur en listamanninn,“ segir hann.
„Gott dæmi er hús Samúels í Selár-
dal,“ segir hann og bendir á mál-
verk sem sýnir það. „Eins og er
með hús Einars Jónssonar. Svo má
velta fyrir sér hvaða munur er á því
hvernig listamenn bjuggu í gamla
daga og hvernig þeir búa núna; hér
áður fyrr komu þeir sér stundum
fyrir í eins konar höllum sem oft
var safnað fyrir fyrir þá.“
Þorvaldur segir að hingað til hafi
verið mikið af dýrum og fígúrum í
verkum hans. „Hér er ekkert af
slíku. Þetta eru bara húsin og mér
fannst þau bara þurfa að standa ein
og stök. Þetta er þannig séð eins-
konar portrettsýning,“ segir hann.
Morgunblaðið/Einar Falur
Listamannahús Þorvaldur Jónsson við málverk sitt af byggingu Ásmundar
Sveinssonar við Sigtún. Aftar er málverk af húsi Sverris Stormskers.
Portrettmálverk af
híbýlum listamanna
- Tilvaldar hallir Þorvaldar Jónssonar
Kynningareintök af óútgefinni bók
Sally Rooney, Beautiful World,
Where Are You, sem send voru
völdum ritstjórum, rithöfundum og
áhrifavöldum í maí, hafa gengið
kaupum og sölu fyrir hundruð
dollara, að því er fram kemur í
frétt á vef The Guardian. Kemur
þó mjög greinilega fram á bókar-
kápu að ekki megi selja eintökin,
þau séu aðeins til kynningar. Hafa
eintök af bókinni verið seld á vefj-
um á borð við eBay og Depop fyrir
býsna háar upphæðir, eitt í júní á
209 bandaríkjadali, jafnvirði um 27
þúsund króna. Þá hafa strigapok-
arnir sem bókin var send í meira
að segja verið seldir fyrir allt að
80 dollara.
Kynningareintök ýmissa vin-
sælla höfunda hafa notið vaxandi
vinsælda á söluvefjum hin síðustu
misseri, að því er fram kemur í
fréttinni.
Kynningareintök eftirsótt
Vinsæl Sally Rooney.