Morgunblaðið - 18.09.2021, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 2021
✝
Ester Hall-
grímsdóttir
fæddist í Bolung-
arvík 29. september
1942. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða á Ísafirði
9. september 2021.
Foreldrar Esterar
voru Halldóra
Hjálmarsdóttir, f.
1907, d. 1948, og
Hallgrímur Jóns-
son, f. 1907, d. 1986. Fósturfor-
eldrar hennar voru Gyða Guð-
jónsdóttir, f. 1893, d. 1981, og
Valdimar Samúelsson, f. 1881, d.
1961. Systkini hennar eru Hrefna
sem er látin, Rut, Friðgerður,
Garðar og Svanhvít.
Hinn 3. júní 1967 giftist Ester
Jóni Guðna Péturssyni sjómanni
frá Bolungarvík. Foreldrar hans
voru Fjóla Ólafsdóttir, f. 1922, d.
2018, og Pétur Jónsson, f. 1921,
d. 1995. Börn Esterar og Jóns
eru: 1) Gyða Björg, f. 9 febrúar
1967, maki Finn-
björn Elíasson, f. 30.
september 1965,
börn þeirra eru
Dagný, Hálfdán og
Elísabet, fyrir á
Finnbjörn soninn
Ingimar. Barnabörn
þeirra eru sjö. 2)
Fjóla Halldóra, f.
20. janúar 1968,
maki Gylfi Þór Guð-
mundsson, f. 27. júlí
1966. Sonur hennar Steinar Her-
mann, barnsfaðir Ásgeir G. Páls-
son. Synir Fjólu og Gylfa eru Jón
Guðni og Guðmundur Brynjar.
Barnabörn þeirra eru sex. 3)
Hafdís, f. 28. janúar 1971, maki
Ólafur Kristjánsson. Börn þeirra
eru Hákon Elí, Telma og Sigrún.
4) Pétur, f. 3. október 1972, maki
Harpa Rut Rögnvaldsdóttir, f.
18. febrúar 1976. Börn þeirra eru
Kristján Freyr, Jón Guðni og
Halldóra Björg.
Ester bjó fyrstu tvö árin hjá
foreldrum sínum en vegna veik-
inda móður hennar fór hún í fóst-
ur að Fremra-Ósi til Gyðu og
Valdimars. Þegar Ester er sex
ára flytur hún með þeim á
Grundirnar í Bolungarvík og elst
þar upp.
Ester vann ýmis störf í gegn-
um ævina, á sjúkrahúsi, í fiski og
á sambýli fyrir fólk með fötlun.
Ester og Jón byrjuðu sinn búskap
í Bolungarvík, 1977 flytja þau á
Ísafjörð og búa þar uns þau flytja
aftur til Bolungarvíkur árið
1992. Ester flytur á hjúkr-
unarheimilið Berg í Bolungarvík
árið 2018 og bjó þar þar til hún
lést.
Útför hennar fer fram frá
Hólskirkju í Bolungarvík í dag,
18. september 2021, klukkan 14.
Streymt verður frá athöfninni
á facebooksíðu Viðburðastofu
Vestfjarða, stytt slóð:
https://tinyurl.com/ppfzzsp4
Hlekk á streymi má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Amma mín. Mig langaði svo að
skrifa nokkur orð til þín, ég veit að
þér hefði þótt vænt um það.
Við eigum eftir að sakna þín
mikið, og ég er viss um að þú átt
eftir að fylgjast vel með okkur öll-
um úr sumarlandinu, eins og þú
gerðir alltaf. Þrátt fyrir að vera
mikið föst heima vegna veikinda
síðustu árin þá fylgdist þú svo vel
með okkur öllum, þú vildir alltaf
vita hvað við værum að gera sem
var svo gott að vita, og finna hvað
þér þótti vænt um okkur öll.
Ég er þakklát fyrir öll árin okk-
ar saman, börnin mín fengu að
kynnast langömmu sinni og finna
sömu ást og umhyggju og ég ólst
upp við. Fyrir fjórum árum kom
Ester litla í heiminn, það að þú
hafir getað haldið henni undir
skírn, séð hana taka fyrstu skrefin
sín og fylgst með henni stækka
hlýjar mér þessa dagana. Hún er
ákveðin og mjög sjálfbjarga ung
dama, ég er nokkuð viss um að
það liggur í nafninu.
Elsku amma, takk fyrir allar
stundirnar, takk fyrir að fylgja
mér eftir í lífinu. Hreinskilnina,
athugasemdirnar og ráðlegging-
arnar geymi ég í minningabank-
anum.
Elska þig alltaf,
Dagný.
Hún Ester mágkona mín er
fallin frá eftir löng og oft erfið
veikindi.
Það lagðist ekki vel í hana þeg-
ar enn á ný átti að takmarka heim-
sóknir til hennar vegna þess að
enn ein covid-bylgjan var að herja
á okkur. Því verður ekki með orð-
um lýst hvernig þau ósköp sem
fylgt hafa þessari veiru hljóta að
hafa reynt á fólk eins og hana, en
það var ekki hennar stíll að hafa
mörg orð um það. Ég hef oft sagt,
þegar fólk sem komist hefur því
sem næst allra sinna ferða þrátt
fyrir allt sem gengið hefur á hefur
verið að kvarta yfir einhverjum
smámunum eins og t.d. að setja
upp grímu smá stund ef farið var í
búð: hvernig haldið þið að lífið sé
búið að vera hjá fólki eins og bróð-
ur mínum og mágkonu sem í lang-
an tíma máttu alls ekki hittast og
síðan allar þær takmarkanir sem
búnar eru að vera. Í mínum aug-
um er það fólk eins og þau sem
eru hetjur þessa erfiða tímabils,
sem hafa tekið öllu með miklu
jafnaðargeði.
Þau Nonni og Ester voru mjög
ung þegar þau hófu sína sambúð,
hann var svo ungur þegar þau
giftu sig að það þurfti að sækja um
sérstakt leyfi fyrir hann. Ég man
svo vel eftir fallega brúðarkjóln-
um hennar, brúna kjólnum sem
hún komst enn í þegar þau áttu
gullbrúðkaup. Það er svo margs
að minnast frá þeim tíma þegar
börnin okkar í stórfjölskyldunni
voru lítil, svo mörg á líkum aldri.
Ég minnist t.d. vetrartíma þegar
Gyða og Fjóla voru enn tvær og
Maggi og Jakob tveir að við Ester
unnum til skiptis og pössuðum svo
hvor fyrir aðra. Það var aldrei
neitt vesen í kringum hlutina hjá
Ester, öllu bara tekið með sömu
rónni. Hver man ekki eftir öllum
fallegu hlutunum sem hún heklaði
á yngri árum – eitt sinn sýndi hún
mér brúðarkórónu sem hún var að
búa til fyrir vinkonu sína – eða
gjafakortunum? Hennar líf og
yndi var alltaf fjölskyldan þeirra
Nonna, sem orðinn er ansi stór
hópur. Það var alltaf aðdáunar-
vert að fylgjast með því hve þau
bæði héldu vel utan um hópinn
sinn og fylgdust svo vel með öllu
hjá þeim. Þar hafa alltaf allir verið
jafnir.
Ég og mín fjölskylda viljum
þakka elsku Ester fyrir allt í
gegnum tíðina. Elskulegi aðdáun-
arverði bróðir minn, við viljum
biðja guð að geyma þig og allan
hópinn þinn og sendum ykkur
samúðarkveðjur.
Elísabet María
Pétursdóttir.
Ester Hallgrímsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐBJÖRG ÞORLEIFSDÓTTIR,
Hrísmóum 1, Garðabæ,
lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu,
Hraunvangi í Hafnarfirði, sunnudaginn
12. september. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju
klukkan 14 mánudaginn 20. september.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Sigurborg Sigurðardóttir Ljótur Ingason
Svanhvít Sigurðardóttir Ragnar Jörundsson
María Sigurðardóttir Páll Sigurðsson
Halldór Ó. Sigurðsson Margrét H. Hjaltested
Þóra Sigurðardóttir Sigurður G. Jóhannsson
Ingvar E. Sigurðsson Edda Arnljótsdóttir
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN SIGURÐSSON,
fyrrverandi skólastjóri,
sem lést á líknardeild Landspítalans
föstudaginn 10. september, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 24. september
klukkan 10. Streymt verður frá útförinni á:
www.skjaskot.is/jonsigurdssson
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hins látna er bent á krabbameinsdeild og líknardeild
Landspítalans.
Sigrún Jóhannesdóttir
Óli Jón Jónsson Ágústa Kristófersdóttir
Snorri Jónsson Bára Ósk Einarsdóttir
Kristín Emilsdóttir Helgi Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi,
bróðir og mágur,
SIGURÐUR HAFSTEINN
HALLGRÍMSSON,
Diddi Hallgríms,
lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Höfða mánudaginn 13. september
Útförin fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 20. september
klukkan 13. Streymt verður frá útförinni á vef Akraneskirkju,
www.akraneskirkja.is
Aðstandendur vilja þakka starfsfólki á Höfða fyrir hlýja og góða
umönnun og sérstaklega starfsfólki Jaðars.
Jakob Sigurðsson Ólöf Bjarney Hauksdóttir
Sólveig Salvör Sigurðardóttir
Arnheiður Sigurðardóttir Ívar Magnússon
Sigrún Sigurðardóttir Helgi Sigurbjörnsson
Aðalbjörg Alla Sigurðardóttir Elvar Grétarsson
Frans Páll Sigurðsson Brynja Valdimarsdóttir
Stefanía G. Sigurðardóttir Pétur Svanbergsson
Valdimar K. Sigurðsson Lilja Þorsteinsdóttir
og aðrir aðstandendur
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
HJÖRDÍS ÞÓRÐARDÓTTIR
íþróttakennari,
lést mánudaginn 13. september.
Útförin fer fram frá Lágafellskirkju
miðvikudaginn 22. september klukkan 13.
Árni Árnason Dóra G. Wild
Árni Haukur Árnason, Agnes Wild, Egill K. Wild
og fjölskyldur þeirra
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir
og tengdafaðir,
GUNNAR RÚNAR KRISTJÁNSSON
á Akri,
lést þriðjudaginn 7. september á krabba-
meinsdeild Landspítalans.
Útför fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn
25. september klukkan 14. Hægt verður að nálgast streymi á
facebooksíðu Blönduóskirkju. Þeim sem langar að minnast
hans er bent á Krabbameinsfélag A-Húnavatnssýslu.
Jóhanna Erla Pálmadóttir
Guðný Björnsdóttir
Helga Gunnarsdóttir
Pálmi Gunnarsson Þuríður Hermannsdóttir
Okkar ástkæri
HJÁLMAR JÓHANNESSON
húsasmíðameistari,
Norðurtúni 13, Siglufirði,
lést á Sjúkrahúsinu á Siglufirði
15. september. Boðið er til kveðjustundar á
Kaffi Rauðku, Siglufirði, mánudaginn 20.
september milli klukkan 16 og 18.
Kolbrún Friðriksdóttir
Jóhannes Hjálmarsson Brynja Björk Úlfarsdóttir
Sandra Hjálmarsdóttir Haukur Arnórsson
Einar Hrafn Hjálmarsson Þórunn Anna Elíasdóttir
barnabörn og langafabarn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
INGIMUNDUR MAGNÚSSON
ljósmyndari,
lést 12. september.
Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn
24. september klukkan 15. Blóm og kransar eru vinsamlega
afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta
elliheimilið Grund njóta.
Magnús Ingimundarson Brynhildur Ingvarsdóttir
Gunnar Ingimundarson Hrund Sch. Thorsteinsson
Bolli Þór Bollason Hrefna Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri
EINAR HJALTASON
læknir,
Björtuhlíð 6, Mosfellsbæ,
lést mánudaginn 6. september.
Útför fer fram frá Bústaðakirkju
mánudaginn 20. september klukkan 13. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á styrktarsjóð bráðasviðs Landspítala.
Birna Sigurðardóttir
Hjalti Sveinn Einarsson
Trausti Einarsson Berglind Brynjólfsdóttir
Sigrún Einarsdóttir
Einar Magnús Einarsson Margrét Ingvarsdóttir
Margrét Jóna Einarsdóttir Baldur Þórólfsson
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR ÞÓRIR FRIÐJÓNSSON,
Hjarðarholti 8, Akranesi,
áður Hóli, Svínadal,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Heilbrigðis-
stofnun Vesturlands á Akranesi miðvikudaginn 15. september.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 24. september
klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju,
www.akraneskirkja.is.
Sigríður Illugadóttir
Friðjón Guðmundsson Sylvía Rós Helgadóttir
Kristjana J. Jóhannsdóttir
Jón Þórólfur Guðmundsson Silja Ósk Björnsdóttir
Sæunn K. Guðmundsdóttir Jóhann S. Andrésson
Sigurþór Guðmundsson Sigríður Ólöf Valdimarsdóttir
og afabörnin
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SOFFÍA ÁGÚSTSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum 3. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Ágúst Oddsson Elizabeth H. Einarsdóttir
Kristján Oddsson Berglind Steffensen
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær dóttir mín, systir, mágkona
og frænka,
VIRGINÍA EVA S. GUÐMUNDSDÓTTIR,
Sviss,
lést mánudaginn 2. ágúst í Sviss.
Minningarathöfn verður frá Árbæjarkirkju
fimmtudaginn 23. september klukkan 13.
Bálför hefur farið fram.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast Evu er bent á Píeta-samtökin.
Helga I. Þorkelsdóttir
Helgi Þór Guðmundsson Edith Þóra Pétursdóttir
Gunnar Már Guðmundsson Marta María Hirst
Breki Þór, Embla Rut og Logi Hrafn Helgabörn,
Guðmundur Karl og Ingibjörg Erla Gunnarsbörn